Skattfrádráttur dæmi um þróunarstyrk sem fleiri gætu nýtt sér Rakel Sveinsdóttir skrifar 13. febrúar 2020 09:00 Svandís Unnur Sigurðardóttir starfar sem sérfræðingur hjá Rannís. Hún bendir á nokkra nýsköpunarsjóði sem fyrirtæki geta sóst í fyrir sín nýsöpunar- og þróunarverkefni. Það á við um rótgróin fyrirtæki sem yngri fyrirtæki. Vísir/Vilhelm
Það eru ekki einungis ung fyrirtæki eða ,,start up“ fyrirtæki sem geta sótt um styrk fyrir þróunar- og nýsköpunarverkefni. Rótgróin fyrirtæki geta gert það einnig segir Svandís Unnur Sigurðardóttir sérfræðingur hjá Rannís. Sérstaklega er bent á skattfrádrátt en þar geta fyrirtæki fengið allt að 20% af útlögðum kostnaði niðurgreidda vegna þróunarverkefna sem þau sinna. Í umræðu um mikilvægi nýsköpunar í atvinnulífinu er vert að benda fyrirtækjum á að öll fyrirtæki geta sótt um styrki fyrir sérstök nýsköpunar- eða þróunarverkefni sem þau sinna innanhús hjá sér. Fjölmörg dæmi eru um að fyrirtæki sem hafa verið í rekstri í dágóðan tíma, nýti sér þetta. Má þar nefna Kerecis, Nox Medical og Orf Líftækni. Styrkir eru veittir miðað við mismunandi skilyrði og forsendur. En hvaða sjóðir eru það þá helst sem fyrirtæki geta almennt sóst í? ,,Það eru þessir fyrirtækjastyrkir, Vöxtur og Markaðsstyrkur, einnig eru í boði styrkir fyrir einkaleyfi og Evrópusamstörf eins og ERA-net og Eurostars,“ segir Svandís Unnur og bætir við ,,Svo er Skattfrádráttur rannsókna- og þróunarverkefna, sem er réttindasjóður.“ Í handbók um skattfrádrátt segir: ,,Fyrirtæki sem er eigandi að rannsóknar- eða þróunarverkefni á rétt á frádrætti frá álögðum tekjuskatti sem nemur allt að 20% af útlögðum kostnaði vegna þessara verkefna. Hámark kostnaðar til útreiknings hjá hverju fyrirtæki er 600.000.000 kr á rekstrarári ef verkefnið er ekki samstarfsverkefni og ef fyrirtækið er ekki með aðkeypta rannsóknar- eða þróunarvinnu í verkefninu.“ Einnig: Nýsköpun ekki lúxus heldur lífsnauðsynleg Að sögn Svandísar Unnar eru endurskoðendur sérstaklega hvattir til að benda fyrirtækjum á skattfrádráttinn. Þá segir hún Rannís einnig standa fyrir opnum kynningarfundum reglulega til að vekja athygli á styrkjum sem eru í boði. Getur þú nefnt dæmi um styrkveitingar síðustu árin til fyrirtækja sem hafa verið lengi í rekstri en nýtt styrki til að létta undir kostnaði nýsköpunarverkefna? „Nokkur dæmi um slík fyrirtæki eru CRI hf, ORF Líftækni hf., Nox Medical ehf., DT Equipment ehf., Thor Ice Chilling Solutions ehf., KERECIS hf. og CURIO ehf. en þau hafa öll starfað lengi í rekstri og fengið styrki vegna nýsköpunarverkefna sem þau sinna innanhúss.“ Að fá styrk getur verið hvetjandi fyrir fyrirtæki að ráðast í nýsköpunarverkefni. Sem dæmi má nefna er Markaðsstyrkur ætlaður litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem huga á sókn á nýjum mörkuðum eða vinna að þróunarverkefni sem kallar á frekari uppbyggingu innviða. Á vefsíðu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands má einnig sjá yfirlit yfir stærri og smærri styrki.
Nýsköpun Skattar og tollar Tengdar fréttir Leið til að hætta ekki við góðar hugmyndir Langar þig að stofna þinn eiginn rekstur? Eða ertu með einhverja góða hugmynd fyrir vinnuna, sem þú þorir ekki að velta í framkvæmd? Hér rýnum við í það hvað getur verið að aftra fólki frá því að fylgja hugmyndum eftir. 6. febrúar 2020 12:00 Viðskiptavinir munu kaupa sömu skóna aftur og aftur Íslendingar kaupa og henda fatnaði og fylgihlutum í kílóavís á hverju ári. Mikil mengun hlýst af hverri flík, allt frá framleiðslu til förgunar. 24. janúar 2020 10:00 Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur Fleiri fréttir „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi „Svolítið blind á það hversu mikið forréttindafólk við erum“ Okkar eigin Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Breytingar í vinnunni: Hvað þýðir þetta fyrir mig? Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Vá en æðislegt: Fundurinn fellur niður í dag! Vera sem varð til eftir gott vinkonuspjall á sunnudegi Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk „Hvers vegna þarf ég að vera bara verkfræðingur eða bara smiður?“ Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Danir lengra komnir í að nýta spuna á vinnustöðum Leigja frekar en að kaupa: „Ég þarf ekki að eiga allt“ 996 vinnuvikan að ryðja sér til rúms á ný (72 klukkustundir) Slúbbertar og enn verri sögur, afreksfólk og ástin Algengustu áramótaheitin 2026 og góð ráð til að standa við þau Sjá meira
Leið til að hætta ekki við góðar hugmyndir Langar þig að stofna þinn eiginn rekstur? Eða ertu með einhverja góða hugmynd fyrir vinnuna, sem þú þorir ekki að velta í framkvæmd? Hér rýnum við í það hvað getur verið að aftra fólki frá því að fylgja hugmyndum eftir. 6. febrúar 2020 12:00
Viðskiptavinir munu kaupa sömu skóna aftur og aftur Íslendingar kaupa og henda fatnaði og fylgihlutum í kílóavís á hverju ári. Mikil mengun hlýst af hverri flík, allt frá framleiðslu til förgunar. 24. janúar 2020 10:00