Innlent

Óréttlátt að etja leikskólakennurum gegn samstarfsfólki í verkfalli

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Formaður Eflingar hvetur samninganefnd Reykjavíkurborgar til að leggja fram raunhæfari tillögur til að afstýra ótímabundu verkfalli sem að óbreyttu hefst 17. þessa mánaðar.
Formaður Eflingar hvetur samninganefnd Reykjavíkurborgar til að leggja fram raunhæfari tillögur til að afstýra ótímabundu verkfalli sem að óbreyttu hefst 17. þessa mánaðar. Vísir/Vilhelm

Verkfallsverðir Eflingar hafa ekki orðið varir við nein verkfallsbrot það sem af er verkfalli félagsmanna Eflingar hjá Reykjavíkurborg en ein ábending barst þó um slíkt í gær og verður málið skoðað nánar í dag. Formaður Eflingar hvetur samninganefnd Reykjavíkurborgar til að leggja fram raunhæfari tillögur til að afstýra ótímabundu verkfalli sem að óbreyttu hefst 17. þessa mánaðar.

Verkfall félagsmanna Eflingar hjá Reykjavíkurborg hófst um hádegisbil í gær en að óbreyttu lýkur því ekki fyrr en á miðnætti 13. febrúar. Áætlað er að verkfallsaðgerðirnar hafi áhrif á rúmlega helming leikskólabarna hjá borginni eða um 3.500 börn og fjölskyldur þeirra. Þegar fréttastofa náði tali af Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni eflingar, var hún stödd í Grafarholti að sinna verkfallsvörslu.

„Við höfum ekki orðið vör við neitt. Ég fékk vissulega ábendingu um verkfallsbrot í gærkvöldi og starfsmaður Eflingar gengur í málið í dag.“

Sólveig segir að gríðarlegur munur sé á framkvæmd verkfallsins nú, samanborið við verkfallið í vor. Starfsfólkið sýni samstarfsfólki sínu sem er í verkfalli mikinn skilning og stuðning og því sé sé óforskammað hvernig tveimur hópum hefur verið att gegn hvor öðrum í kjaradeilunni, annars vegar faglærðum leikskólakennurum og starfsfólki leikskólanna sem eru í verkfalli.

„Þetta er náttúrulega að mínu mati bara ótrúlega forhert og harðsvírað að stilla upp tveimur hópum, mestmegnis konum, sem starfa hlið við hlið inn á sömu stofnun og við sömu kringumstæður og láta eins og það sé hið stórkostlega vandamál í þessari kjaradeilu. Að mínu mati er það einfaldlega óheiðarleg framsetning og ósönn.“

Fundi samninganefnda deiluaðilanna var frestað á mánudag en ríkissáttasemjari hefur enn ekki boðað til nýs fundar.

„Við náttúrulega, horfum núna fram á það að ef samninganefnd Reykjavíkurborgar fer ekki að færa okkur eitthvað sem hægt er að skoða af fullri alvöru og ef yfirstjórn þessarar borgar, borgarstjóri og aðrir pólitískir leiðtogar fara ekki að axla sína ábyrgð að fullu og knýja á um að eitthvað, sem hægt er að ræða, verði sett á samningaborðið þá 17. þessa mánaðar erum við bara að fara inn í ótímabundin verkföll með öllu sem því fylgir. Ég sannarlega vona að fólk sé á fullu að undirbúa eitthvað tilboð til okkar sem við getum skoðað og að loksins, eftir allan þennan óralanga tíma, geti þessar samningaviðræður komist á þann stað að fólk fari í sameiningu að vinna að því að finna lausn á þessari erfiðu deilu,“ segir Sólveig Anna.


Tengdar fréttir

SA hvetur fyrirtæki til að sýna starfsfólki skilning vegna fjarveru

Verkfallsaðgerðir Eflingar sem staðið gætu í tæpa þrjá sólarhringa hefjast í hádeginu í dag og munu hafa áhrif á þúsundir fjölskyldna á höfuðborgarsvæðinu. Samtök atvinnulífsins hvetja fyrirtæki til að sýna starfsfólki sínu tillitsemi vegna fjarveru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×