Atvinnulíf

Nýjung í Hollandi: Íbúar deili hjólum og bílum

Rakel Sveinsdóttir skrifar

Mikil hjólamenning er í Hollandi þar sem veturinn telur um þrjá mánuði á ári og snjór er sjaldséð sjón. Talið er að allt að þriðjungur íbúa hjóli til vinnu daglega. Þar eins og víðast hvar er bíllinn þó enn helsti samgöngumátinn og ekki óalgengt að sjá tvo bíla fyrir utan hvert heimili í hverfum. 

Í fjórðu stærstu borg landsins, Utrecht, stefna byggingaraðilar nú á að breyta þessu. Ekki aðeins áforma þeir að byggja umhverfisvænt og sjálfbært hverfi í miðborginni, heldur er hugmyndafræðin þeirra sú að innifalið fyrir íbúa verði bæði hjól og bíll, sem íbúar deila með sér notkun á.

Íbúar Utreht eru í yngri kantinum og óvenju hátt hlutfall þeirra er á þrítugsaldri.  Það skýrist af því að í Utrecht er stærsti háskóli Hollands.  Græna hverfið sem fyrirhugað er að byggja heitir Merwede og áætlað er að þar muni um 12 þúsund íbúar búa.

Þrjú heimili myndu þá deila með sér einum bíl. Í viðtali við FastCompany segir arkitekt hverfisins, Marco Broekman, þetta í takt við breytt viðhorf nýrra kynslóða sem líta á deilihagkerfið sem eðlilegan hlut.  Það eigi þá við um bíla og hjól.

Að öðru leyti eru hugmyndir um Merwede ekki ósvipaðar öðrum sambærilegum verkefnum sem byggja á að íbúar geti sótt sér alla þjónustu í göngufæri og að íbúakjarninn sé grænn og umhverfisvænn.  Þá er staðsetning Merwede mjög góð því stutt er í allar lestarsamgöngur sem liggja til allra átta í Hollandi. 

Verkefnið hefur verið kynnt og er nú opið fyrir umsögnum íbúa.  Þótt margir líti jákvætt á áætlanirnar, eru aðrir sem hafa áhyggjur af því að þarna sé að myndast of fjölmenn byggð á litlu svæði.  Þá muni fjölgun hjólreiðafólks á svæðinu trufla aðrar samgöngur, s.s. yfir brýr og fleira.  Hverfið geti því ekki orðið að veruleika nema borgin endurskoði annað skipulag í kring.


Tengdar fréttir

Mun vinnustaðurinn þinn líta svona út 2030?

Það verður hægt að sjá á rauntíma hvar þú og samstarfsfélagar þínir eru á vinnustaðnum og skynjari mun stimpla þig inn og úr vinnu. Þú færð rafrænar leiðbeiningar um laus bílastæði fyrir (rafmagns-) bílinn þinn og hiti, birta og raki verður stilltur að þínum þörfum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×