Atvinnulíf

Starfsframinn og samtalið um yfirmanninn

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Oft veit fólk ekki í hverju verkefni yfirmannsins felast helst en starfsframamarkþjálfi mælir með því að starfsfólk kynni sér málin.
Oft veit fólk ekki í hverju verkefni yfirmannsins felast helst en starfsframamarkþjálfi mælir með því að starfsfólk kynni sér málin. Vísir/Getty

Í gegnum tíðina hefur mikið verið um það fjallað hvernig stjórnendur eigi að beita sér gagnvart starfsfólki en minna fer fyrir því að ræða hvernig starfsfólk ætti helst að beita sér gagnvart stjórnendum sínum. Rithöfundurinn og starfsframa-markþjálfinn Lea McLeod sérhæfir sig í málefnum sem varða erfiða samstarfsfélaga og yfirmenn. Hún segir alla sem vilja ná langt í starfi þurfa að huga að því sérstaklega hvernig þeir beita sér gagnvart stjórnendum sínum. Þar skipti líka máli að horfa á yfirmanninn sem bandamann frekar en stjórnanda á stalli.

Það sem McLeod mælir með að fólk geri er að spyrja yfirmenn sína reglulega spurninga sem veitir þeim innsýn í þeirra verkefni, áherslur, árangur í starfi, framtíðarplön eða framtíðarsýn.

Að sögn McLeod er það algengt að starfsfólk veit ekki í hverju helstu verkefni yfirmannsins felast. Með því að verða upplýstari um þá vinnu fer fólk oft að skilja betur sjónarmið stjórnandans. Þá segir hún reglubundin samtöl starfsmanns við yfirmann um verkefni þess síðarnefnda oft skila sér í meiri samvinnu. Það geti síðar nýst vel fyrir starfsframann, til dæmis þegar leitað verður til yfirmannsins sem meðmælanda.

McLeod gefur nokkrar hugmyndir að spurningum sem hún mælir með að fólk spyrji og við látum fylgja hér með. 

Auðvitað þarf hver og einn að orða spurningarnar með sínum hætti en þær eiga þó að gefa hugmyndir um það hvers konar samtal McLeod hvetur fólk til að eiga við sína yfirmenn.

  • Hvert er meginmarkmiðið þitt í starfinu þínu?
  • Hver eru markmiðin þín í starfsframa? (þ.e. hvort viðkomandi sjái sig í öðru starfi síðar um ævina)
  • Hverjar eru helstu áherslur yfirmanns þíns? (stjórnendur eru líka með yfirmenn)
  • Er eitthvað sem ég get gert til að aðstoða þig í þínum verkefnum?
  • Hvaða eitt atriði myndir þú helst vilja að ég gerði öðruvísi en ég geri nú?
  • Hvað myndir þú vilja að ég áttaði mig betur á varðandi þína vinnu eða stjórnunarhætti?
  • Með hvaða hætti myndir þú vilja að ég gæfi þér endurgjöf? (þessi spurning á þó ekki við um stjórnendur sem vilja að starfsfólk þeirra sé alltaf sammála þeim)
  • Hvers vegna vildir þú ráða mig í starfið mitt?




Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×