Ögmundur mætti þremur vítaspyrnum í tapi Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 25. janúar 2020 20:30 Ögmundur í leik með Larissa Vísir/Getty
Ögmundur Kristinsson stóð á milli stanganna er Larissa tapaði 2-0 fyrir Panathinaikos á heimavelli í grísku úrvalsdeildinni í kvöld. Bæði mörk gestanna komu af vítapunktinum. Alls fengu gestirnir þrjár vítaspyrnur í leiknum, Ögmundur varði eina þeirra. Hinn einkar geðþekki Anastasios Chatzigiovannis skoraði fyrra mark leiksins á 25. mínútu og staðan þar með orðin 1-0 Panathinaikos í vil. Reyndist það eina mark fyrri hálfleiks. Þremur mínútum síðar var Chatzigiovannis mættur aftur á vítapunktinn en Ögmundur las hann eins og opna bók í þetta skiptið og greip hörmulega spyrnu Grikkjans. Það var ekki erfitt fyrir Ögmund að verja þessa spyrnu. pic.twitter.com/m1zna3bJ0m— Íslendingavaktin (@Islendingavakt) January 25, 2020 Það var svo undir lok leiks sem Larissa fékk dæmda á sig enn eina vítaspyrnuna. Ögmundur fékk í kjölfarið gult spjald fyrir mótmæli, einn af fimm leikmönnum Larissa sem fengu að líta gula spjaldið í leik kvöldsins. Að þessu sinni var það Ioannis Bouzoukis sem fór á punktinn fyrir gestina og skoraði hann, líkt og Chatzigiovannis hafði gert í fyrra skiptið. Staðan því orðin 2-0 og reyndust það lokatölur leiksins. Larissa í 9. sæti deildarinnar með 24 stig þegar 21. umferð er lokið.
Fótbolti Mest lesið FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Sýður á Svisslendingum Fótbolti Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti KR - ÍBV | Funheitir Eyjamenn í Vesturbæ Íslenski boltinn Fleiri fréttir FH - Valur | Vængbrotnir í Krikanum Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Segir FIFA skoða að fjölga liðum á HM í 64 KA - ÍA | Tvö sem hafa valdið vonbrigðum Fram - Þór Ak. | Botnliðið í Úlfarsárdal KR - ÍBV | Funheitir Eyjamenn í Vesturbæ Draumabyrjun Freys hjá norska stórveldinu Sjáðu Róbert Frosta tryggja GAIS dísætan sigur „Mikil saga og mikill sársauki“ Sýður á Svisslendingum Haaland eldri hraunar yfir dómarana Argentínsk goðsögn fallin frá FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Sveindís og stöllur unnu toppliðið Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Sjá meira