Viðskipti innlent

Þrjátíu sagt upp hjá Póstinum sem dregur úr dreifingu fjölpósts

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Uppstokkun Póstsins heldur áfram.
Uppstokkun Póstsins heldur áfram. Vísir/Vilhelm

Frá og með 1. maí næstkomandi mun Pósturinn hætta dreifingu á ónafnamerktum fjölpósti á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesi, Selfossi og Akranesi. Rúmlega þrjátíu starfsmönnum verður sagt upp frá og með deginum í dag vegna breytinganna.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Póstinum þar sem segir að magn fjölpósts hafi dregist mikið saman á undanförnum árum og mikil fækkun almennra bréfa haft það í för með sér að minni samlegðaráhrif séu á dreifingu bréfapósts og fjölpósts.

Nú sé hins vegar svo komið að lítill rekstrargrundvöllur sé fyrir þessari þjónustu þar sem bréfum hafi fækkað svo mikið að oft fari bréfberar eingöngu með fjölpóst en engin bréf.

Pósturinn mun halda áfram bjóða upp á dreifingu á fjölpósti á öðrum svæðum og í dreifbýli. Þessi breyting leiðir til um 200 milljóna króna lækkunar kostnaðar á ársgrundvelli hjá fyrirtækinu, að því er segir í tilkynningunni.

Uppsagnirnar tilkynntar til Vinnumálastofnunar

Þessi breyting mun hafa áhrif á um fjörutíu starfsmenn fyrirtækisins en í tilkynningunni segir að mögulegt sé að færa um tíu starfsmenn til í starfi innan fyrirtækisins.

Birgir Jónsson, forstjóri Póstsins.Íslandspóstur

„Rúmlega 30 starfsmönnum verður því sagt upp störfum frá og með deginum í dag og er þar um að ræða starfsmenn í flokkun og dreifingu á svæðinu sem um ræðir. Rætt verður við þá starfsmenn sem missa vinnuna í dag en ekki verður óskað eftir starfsframlagi á uppsagnartímanum,“ segir í tilkynningunni.

Þeim starfsmönnum sem missa vinnuna verður boðinn stuðningur við starfslokin svo sem sálfræðiþjónusta og ráðgjöf við atvinnuleit. Pósturinn hefur tilkynnt uppsagnirnar til Vinnumálastofnunar, stéttarfélaga og annarra sem hlut eiga að máli, að því er segir í tilkynningu frá Póstinum.

„Við erum önnum kafin við að aðlaga reksturinn að kröfum á nútíma markaði en í svona endurskipulagningu þarf að horfast í augu við staðreyndir og taka margar erfiðar ákvarðanir, þessi ákvörðun er ein þeirra. Ég þakka því góða starfsfólki sem nú kveður okkur fyrir vel unnin störf og óska þeim góðs gengis í næstu verkefnum,“ er haft eftir Birgi Jónssyni, forstjóra Póstsins, í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Öflugur viðsnúningur hjá Íslandspósti

Árangurinn af hagræðingu Íslandspósts er að koma í ljós. Útlit fyrir að afkoman verði við núllið á næsta ári eftir stanslaust tap um margra ára skeið. Forstjórinn sér fram á að Íslandspóstur geti byrjað að skila hagnaði þegar búið er að bæta skuldastöðuna.

Spyr hvort Pósturinn hefði ekki mátt hagræða fyrr

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis kemur saman til fundar í dag til að ræða málefni Íslandspósts. Hanna Katrín Friðriksson, fulltrúi Viðreisnar í nefndinni, átti frumkvæði að fundinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×