Fótbolti

Ögmundur spilaði í tapi

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Ögmundur Kristinsson.
Ögmundur Kristinsson. Getty/Jonas Gustafsson

Íslenski knattspyrnumaðurinn Ögmundur Kristinsson var á sínum stað á milli stanganna hjá Larissa í dag þegar liðið heimsótti Xanthi í grísku úrvalsdeildinni.

Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Radomir Milosavljević Larissa yfir á 64.mínútu.

Forystan entist gestunum þó ansi stutt því fjórum mínútum síðar var staðan orðin 2-1 fyrir Xanthi þar sem Jordan Faucher gerði tvö mörk á innan við mínútu á 67. og 68.mínútu.

Sigurinn lyfti Xanthi upp fyrir Larissa en Ögmundur og félagar eru í 8.sæti af þeim 14 liðum sem leika í grísku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×