Innlent

Búið að opna þjóð­veg 1 um Þvott­ár­skriður

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Aurskriðan fór yfir veginn, líkt og sést á myndinni.
Aurskriðan fór yfir veginn, líkt og sést á myndinni. Vegagerðin

Búið er að opna þjóðveg 1 um Þvottárskriður milli Hafnar og Djúpavogs. Aurskriða féll yfir veginn fyrir hádegi og lokaði honum. Í tilkynningu frá vegagerðinni sem birtist skömmu fyrir klukkan tvö segir að enn sé unnið á veginum og vegfarendur beðnir um að sýna sérstaka varúð.

Mikið vatnaveður hefur verið á Suðausturlandi síðasta sólarhringinn og voru gular storm- og rigningarviðvaranir í gildi í landshlutanum fram eftir morgni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×