Icelandair og Flugfreyjufélagið funda Vésteinn Örn Pétursson skrifar 18. júlí 2020 18:30 Fyrir utan húsnæði Ríkissáttasemjara í kvöld. Vísir/Frikki
Samninganefndir Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands funda í húsnæði Ríkissáttasemjara í kvöld, samkvæmt áreiðanlegum heimildum fréttastofu. Hvorki Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari né Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sem fara með viðræðurnar fyrir hönd Icelandair, hafa viljað staðfesta þetta við fréttastofu. Í gær tilkynnti Icelandair um ákvörðun sína um að slíta kjaraviðræðum við Flugfreyjufélagið. Öllum flugfreyjum og þjónum félagsins yrði því sagt upp. Í tilkynningu frá félaginu kom fram að Icelandair gerði ráð fyrir að snúa sér til annars samningsaðila á vinnumarkaði hérlendis. Kjaraviðræður Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands hafa staðið yfir undanfarna mánuði. Samningur milli félaganna var undirritaður 25. júní en var kolfelldur í atkvæðagreiðslu FFÍ nú í júlí. Forsvarsmenn Icelandair hafa lagt áherslu á að samningar þurfi að nást við stéttarfélög starfsmanna fyrir hlutafjárútboð sem stefnt er að á næstu vikum. Þegar hefur verið samið við flugmenn og flugvirkja en í tilkynningu Icelandair segir að það sé mat félagsins að ekki verði lengra komist í viðræðum við Flugfreyjufélag Íslands. Þeim hafi því verið slitið og öllum flugfreyjum sem starfa hjá félaginu sagt upp. Fréttin hefur verið uppfærð.
Kjaramál Icelandair Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Fleiri fréttir Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Sjá meira