Makamál

Helmingur segist hafa leitað aftur í gamla sambandið

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Alls tóku 2500 manns þátt í könnun Makamála og ef marka má niðurstöðurnar hefur helmingur lesenda byrjað aftur með fyrrverandi maka.
Alls tóku 2500 manns þátt í könnun Makamála og ef marka má niðurstöðurnar hefur helmingur lesenda byrjað aftur með fyrrverandi maka. Getty

Í Spurningu vikunnar í síðustu viku spurðum við lesendur Vísis hvort að þeir hafi byrjað aftur með fyrrverandi maka. Alls tóku 2500 manns þátt í könnuninni og ef marka má niðurstöðurnar hefur helmingur lesenda byrjað aftur með fyrrverandi maka. 

Um þriðjungur segir að sambandið hafi ekki gengið eftir að hafa byrjað aftur saman á meðan 17% segja það hafa gengið upp.

Eðlilega er ekkert rétt svar við spurningunni hvort að það sé skynsamlegt að taka aftur saman við fyrrverandi maka enda aðstæður og saga fólks mjög mismunandi. 

Stundum er sambandið fullreynt og stundum á það á inni annað tækifæri.

Hægt er að sjá nákvæmari niðurstöður hér fyrir neðan: 

Hefur þú byrjað aftur með fyrrverandi maka?

Já, erum ennþá saman - 17%

Já, en það gekk ekki upp - 34%

Nei - 43%

Nei, en mig langar það - 6%



*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×