Makamál

Stálust á stefnumót í samkomubanni

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Þegar ástin er annars vegar hefur mannfólkinu oft á tíðum reynst erfitt að fylgja boðum og bönnum.
Þegar ástin er annars vegar hefur mannfólkinu oft á tíðum reynst erfitt að fylgja boðum og bönnum. Getty

Þegar ástin er annars vegar hefur mannfólkinu oft á tíðum reynst erfitt að fylgja boðum og bönnum. Einnig hefur því stundum verið kastað fram að það sem er bannað sé jafnvel ennþá meira spennandi. 

Í Spurningu síðustu viku var spurt um stefnumót í samkomubanni. Samkvæmt reglum sóttvarnalæknis var fólki ráðlagt að forðast mikil og náin samskipti og virða tveggja metra regluna. Má því segja að stefnumót hafi verið á bannlista.

En hverju svöruðu lesendur Vísis? 

Ef marka má niðurstöður úr könnuninni, sem beint var til einhleyps fólks, segist tæplega helmingur svarenda hafa farið á stefnumót í samkomubanninu.

Þúsund manns tóku þátt í könnuninni og hægt er að sjá nákvæmari niðurstöður hér fyrir neðan. 

NIÐURSTÖÐUR

Já - 43%

Nei - 57%

Makamál mættu í Brennsluna á FM957 í morgun og ræddu niðurstöðurnar. Einnig var kynnt til leiks ný Spurning vikunnar.

Hægt er að hlusta á líflegar umræður hér fyrir neðan.

*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.




Tengdar fréttir

Spurning vikunnar: Hefur þú stundað net-kynlíf?

Með hraðri þróun í samskiptum á samfélagsmiðlum undanfarin ár hafa stefnumót og daður færst að miklu leiti yfir á netið. En hvað með kynlíf? Er hægt að stunda kynlíf með einhverri manneskju án þessa að hitta hana?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×