Atvinnulíf

„V-in“ þrjú hafa þyngt róðurinn en það er mikilvægt að við stöndum saman

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Pfaff hefur farið í gegnum tímanna tvenna á þeim 90 árum sem fyrirtækið hefur verið rekið af sömu fjölskyldunni. Margrét Kristmannsdóttir framkvæmdastjóri Pfaff og varaformaður Viðskiptaráðs Íslands hvetur stjórnvöld og atvinnulífið til að tala meira saman.
Pfaff hefur farið í gegnum tímanna tvenna á þeim 90 árum sem fyrirtækið hefur verið rekið af sömu fjölskyldunni. Margrét Kristmannsdóttir framkvæmdastjóri Pfaff og varaformaður Viðskiptaráðs Íslands hvetur stjórnvöld og atvinnulífið til að tala meira saman.

Margrét Kristmannsdóttir hvetur stjórnvöld til að eiga virkara samtal við atvinnulífið því þar veit fólk hver staðan er dag frá degi. Það geti verið skynsamlegt að stjórnvöld og atvinnulífið myndi aðgerðahópa þar sem aðilar snúi bökum saman og standi saman að því að koma atvinnulífinu í gegnum það ástand sem nú ríkir. Hún segir mikilvægt að við höldum haus og séum meðvituð um að enginn hafi öll svör við ástandinu sem við blasi. Með sínu starfsfólki, fór Margréti yfir „V-in“ þrjú sem öll hafa haft gríðarlega mikil áhrif á rekstur í vetur. En eins og alltaf, mun birta upp um síðir.

Pfaff fagnaði 90 ára afmæli sínu í fyrra og því er óhætt að segja að verslunin hafi farið í gegnum tímanna tvenna. Pfaff hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar frá upphafi og því ekki úr vegi að heyra hvernig Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff og varaformaður í Viðskiptaráði Íslands er að meta stöðuna.

Hvetur stjórnvöld og atvinnulíf til að tala meira saman

Aðspurð um hvernig henni lítist á aðgerðarpakka stjórnvalda sem kynntur var til sögunnar fyrir atvinnulífið segir Margrét „Það er skiljanlegt að stjórnvöld einblíni fyrst á ferðaþjónustuna enda má segja að það sé sú atvinnugrein sem sé hálfpartinn í „frjálsu falli“ og þar verður að grípa strax inn í,“ segir Margrét en bætir við „Hins vegar finnst mér aðgerðarpakkinn bera þess merki að stjórnvöld hafa ekki öll svörin, sem er ekkert undarlegt því ekkert okkar hefur farið í gegnum svona tíma.“

Margrét hvetur stjórnvöld til að eiga virkara samtal við atvinnulífið því óvissan er mikil. „Þess vegna vil ég brýna þau til samstarfs við aðila vinnumarkaðarins. Við atvinnurekendur erum að upplifa á hverjum degi afleiðingar af stöðunni, við vitum hvar skóinn kreppir og hvernig við sjáum að best væri að haga stöðunni til að tryggja að sem flestir komi standandi út úr þessum aðstæðum,“ segir Margrét.

Að hennar mati ættu fleiri hópar að gera slíkt hið sama.

„Ólíkar atvinnugreinar þurfa ólíkar lausnir en nú þurfum við að snúa bökum saman, mynda vinnuhópa, fá sem flestar hugmyndir upp á borðið og vinna okkur skref fyrir skref í gegnum þetta.“

Sóttkví getur auðveldlega endað með lokun en…

Fjölmörg fyrirtæki hafa gripið til þess ráðs að biðja starfsfólk um að vinna í fjarvinnu að heiman, ýmist vegna sóttkvía eða sem hluta af aðgerðaráætlun til að forðast fjöldaforföll. Fyrir verslunareigendur er þetta ekki til staðar, eða hvað?

„Verslunin er því miður mjög viðkvæm fyrir því ef vinnustaður verður settur í sóttkví og það gæti auðveldlega þýtt lokun fyrirtækisins í tvær vikur með tilheyrandi tekjufalli,“ segir Margrét. „Þess vegna er það svo brýnt að verslunareigendur gera allt til að tryggja að sú staða komi ekki upp með því að fara í einu og öllu eftir forvörnum yfirvalda,“ bætir hún við.

Margrét bendir verslunum hins vegar á að nýta sér tæknina.

„Hins vegar búum við á starfrænum tímum þar sem verslunum er í dag að berast mikið af viðskiptum í gegnum vefverslun en þá er spurning hvernig versluninni verði gert kleift að koma þeim vörum til viðskiptavina.

Það gæti skipt miklu máli fyrir verslunina að leita verði allra leiða að halda þeim viðskiptum gangandi ef fyrirtækinu verður gert að loka sjálfum verslunum sínum,“ segir Margrét.

,,V-in þrjú“ hafa þyngt róðurinn en…

Margrét segir að hljóðið í verslunareigendum sé frekar þungt en það hafi reyndar verið svo frá um áramótin. Fleiri þættir en kórónaveiran hefur haft áhrif.

„Ég talaði um „V-in“ þrjú á starfsmannafundi með mínum fólki í vikunni. Þar sagði ég að fyrsta V-ið sem hefði haft áhrif á okkur væri veðrið sem hefur verið hundleiðinlegt frá áramótum og gert okkur erfitt fyrir. Síðan tók við V númer tvö sem eru verkföllin sem hafa ekki beint ýtt við neytendum og komið illa niður á versluninni.  Þriðja V-ið er síðan veiran sem er náttúrulega að hafa geigvænlega áhrif sem enginn sér fyrir endann á.“

En það dugir auðvitað ekki að leggja árar í bát og því er Margrét fljót að bæta við enn einu V-inu.

„En til að ljúka þessu á jákvæðum nótum má bæta við fjórða V-inu sem er vorið því við vitum að alltaf birtir upp um síðir og það er kannski það sem við verðum að horfa til akkúrat núna.

Það skiptir gríðarlegu máli að við höldum haus, missum okkur ekki í panikk, gerum eins vel og við getum. Vitandi það að við munum komast í gegnum þessa erfiðleika sem þjóð.“


Tengdar fréttir





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×