Í verðstríði Sáda og Rússa, tapa Bandaríkin Samúel Karl Ólason skrifar 11. mars 2020 13:39 Olíuframleiðsla í Bandaríkjunum er kostnaðarsamari en víðast hvar annarsstaðar. Vísir/Getty
Bæði yfirvöld Rússlands og Sádi-Arabíu segjast tilbúin í langvarandi átök um olíuverð. Sádar ætla í senn að auka framleiðslu til muna og auka framleiðslugetu í fyrsta sinn í mörg ár. Rússar hafa sömuleiðis heitið því auka framleiðslu til muna og olíuverð hefur hrunið. Frá því að Rússar neituðu í síðustu að starfa með Samtökum olíuútflutningslanda, eða OPEC, sem Sádar svo gott sem stýra, eins og þeir hafa lengi gert og draga úr framleiðslu vegna samdráttar í eftirspurn sem rakin er til nýju kórónuveirunnar Covid-19, lýstu Sádar því yfir að þeir myndu auka framleiðslu og lækka verð. Markmiðið er að refsa Rússum en gjaldmiðill Rússlands hefur þegar lækkað í verðmæti og Rússar reiða sig á sölu olíu. Útlit er þó fyrir að það verði Bandaríkin sem tapi þessu stríði Rússlands og Sádi-Arabíu og til lengri tíma vinni bæði Rússar og Sádar. Valdamiklir Rússar hafa lengi mótmælt samstarfi Pútín og Mohammed bin Salmann, krónprins Sádi-Arabíu. Þeir hafa lengi sammælst um að halda framleiðslu niðri og verði uppi. Igor I. Sechin, forsvarsmaður stærsta olíufyrirtækis Rússlands, og bandamaður Vladimir Pútín, forseta, hefur um árabil mótmælt samstarfinu við Sádi-Arabíu. Fari verðstríðið á þann veg að framleiðsla hrynji í Bandaríkjunum eru þó líkur á því að til lengri tíma muni það leiða til hækkunar olíuverðs. AP/Richard Drew Bergbrot og leirsteinsvinnsla breytti Bandaríkjunum á einum áratug úr innflytjanda olíu í stærsta olíuframleiðanda heims. Mun dýrari framleiðsla Óhefðbundin olíu- og gasframleiðsla í Bandaríkjunum, eins og bergbrot og vinnsla leirsteinsgass og olíu, er kostnaðarsamari en sú hefðbundna, þar sem olíu og gasi er dælt upp úr borholum. Þar að auki eru bandarísk olíufyrirtæki tiltölulega skuldsett og ekki vel í stakk búin til að takast á við tekjulækkun og þá sérstaklega ekki til langs tíma. Lækki olíuverð of mikið gæti framleiðsla í Bandaríkjunum hætt að borga sig. Þar sem tunnan þar, kostar mun meira en í Rússlandi og Sádi-Arabíu. Það eru þó ekki allir sem eru sammála um að verðstríð sé Rússum í hag. Sergei Guriev, sérfræðingur sem New York Times ræddi við segir að bandarísk olíuframleiðsla muni aldrei „deyja“. Hún muni bara leggjast í dvala þar til olíuverð nái aftur sömu hæðum og framleiðslan borgar sig á ný. Guriev segir Sechin og bandamenn hans virðast tilbúna að skjóta sjálfa sig í fótinn, svo lengi sem þeir geti einnig skotið Bandaríkjamenn. Vilja aðstoða geirann Fregnir hafa borist af því að Hvíta húsið vilji koma orkufyrirtækjum Bandaríkjanna til aðstoðar en forsvarsmenn geirans hafa kallað eftir opinberri aðstoð. Olíufyrirtækið Occidental Petroleum lækkaði arðgreiðslur úr 79 sentum á hluta í ellefu og skar útgjöld niður um þriðjung. Þá tapaði fyrirtækið Continental Resources helmingi virði síns á hlutabréfamörkuðum. Eigandi þess, Harold Hamm, er mikill stuðningsmaður Donald Trump, forseta, og ráðgjafi hans. Hann sagði í viðtali í gær að ríkisstjórn Trump þyrfti að íhuga aðgerðir til að verja olíuframleiðslu í Bandaríkjunum. Demókratar segjast þó margir andsnúnir slíkum aðgerðum og vilja frekar tryggja verkafólki launað veikindaleyfi í sóttkví.
Bensín og olía Bandaríkin Sádi-Arabía Rússland Tengdar fréttir Sádar boða enn meiri olíuframleiðslu í verðstríði við Rússa Útlit er fyrir enn frekari lækkun á heimsmarkaðsverði á olíu eftir að Sádar tilkynntu að þeir ætluðu að framleiða metmagn af olíu í apríl. Þeir standa nú í verðstríði við Rússa sem vildu ekki samþykkja samdrátt í framleiðslu sem Sádar og OPEC vilja til að bregðast við áhrifum kórónuveirunnar. 10. mars 2020 16:41 Markaðir vestanhafs braggast eftir mikla lækkun Lækkanir gærdagsins sem raktar voru til áhyggna af kórónuveirunni gengu til baka að hluta við opnun markaða í dag. Bandaríkjastjórn ætlar að kynna mótvægisaðgerðir vegna efnahagslegra áhrifa faraldursins í dag. 10. mars 2020 14:18 Deila Sáda og Rússa leiðir til verðfalls olíu Verð hráolíu tók gífurlega dýfu þegar markaðir opnuðu í nótt og hefur verðhrunið ekki verið meira frá upphafi Persaflóastríðsins árið 1991. 9. mars 2020 02:12 Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira
Sádar boða enn meiri olíuframleiðslu í verðstríði við Rússa Útlit er fyrir enn frekari lækkun á heimsmarkaðsverði á olíu eftir að Sádar tilkynntu að þeir ætluðu að framleiða metmagn af olíu í apríl. Þeir standa nú í verðstríði við Rússa sem vildu ekki samþykkja samdrátt í framleiðslu sem Sádar og OPEC vilja til að bregðast við áhrifum kórónuveirunnar. 10. mars 2020 16:41
Markaðir vestanhafs braggast eftir mikla lækkun Lækkanir gærdagsins sem raktar voru til áhyggna af kórónuveirunni gengu til baka að hluta við opnun markaða í dag. Bandaríkjastjórn ætlar að kynna mótvægisaðgerðir vegna efnahagslegra áhrifa faraldursins í dag. 10. mars 2020 14:18
Deila Sáda og Rússa leiðir til verðfalls olíu Verð hráolíu tók gífurlega dýfu þegar markaðir opnuðu í nótt og hefur verðhrunið ekki verið meira frá upphafi Persaflóastríðsins árið 1991. 9. mars 2020 02:12