Skúli segir allt tilbúið og Play klárt í bátana Atli Ísleifsson skrifar 15. maí 2020 08:09 Frá kynningarfundi Play í Perlunni þann 5. nóvember síðastliðinn. Vísir/Vilhelm
Skúli Skúlason, stjórnarformaður og aðaleigandi Play, segir að flugfélagið muni fara í loftið, allt vera tilbúið að þá vera klára í bátana. Þetta segir Skúli í samtali við Mannlíf í morgun, en mikil óvissa hefur verið um framtíð Play eftir að það var kynnt til leiks á miklum fréttamannafundi í nóvember síðastliðinn. Hann segist bjartsýnn á framhaldið. Skúli vill í samtali við blaðið ekki greina frá hverjir viðskiptafélagar hans séu, en í hópnum eru bæði þekktir og óþekktir fjárfestar. Búið sé að safna nægilegum fjölda til að „keyra flugfélagið áfram“, þó að ekki sé útilokað að fleiri fjárfestar bætist í hópinn. „Play er að fara í loftið. Það er alveg ljóst og er bara spurning um dagsetningu. Hún ræðst svo bara aftur á ytri aðstæðum heldur en hitt,“ er haft eftir Skúla. Bætir hann við að búið sé að undirrita viljayfirlýsingu um leigu á þremur flugvélum til að byrja með. Flogið til „skemmtilegra áfangastaða á nýlegum Airbus-vélum“ Play var kynnt til leiks á blaðamannafundi í Perlunni þann 5. nóvember síðastliðinn. Eftir kynninguna bárust hins vegar ekki miklar fréttir af félaginu, nema þá helst af kjaramálum starfsmanna, en Mannlíf hefur áður sagt frá því að Skúli, sem er einn eigenda flugþjónustufyrirtækisins Airport Associates, sé sá sem hafi haldið félaginu á floti síðustu mánuði. Á heimasíðu félagsins segir að Play sé nýtt lággjaldaflugfélag með höfuðstöðvar á Íslandi sem muni fljúga til „skemmtilegra áfangastaða á nýlegum Airbus flugvélum“.
Play Fréttir af flugi Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira