Vegna tafa fá sum börn ekki að hitta foreldra sína í fleiri ár Nadine Guðrún Yaghi skrifar 27. maí 2015 07:00 Helga Vala Helgadóttir héraðsdómslögmaður „
Þetta eru svo viðkvæm mál. Úrskurðir hjá sýslumanni varðandi til dæmis umgengi foreldra við barn eru kæranlegir til innanríkisráðuneytisins og sú staða getur verið uppi að foreldrar fái ekki að hitta barnið sitt í mörg ár vegna seinagangs hjá ráðuneytinu,“ segir Helga Vala Helgadóttir héraðsdómslögmaður, sem gagnrýnir ástandið í innanríkisráðuneytinu. „Mér barst til dæmis bréf frá innanríkisráðuneytinu í vikunni þar sem fram kemur að ráðuneytið hafi móttekið kæru vegna úrskurðar sýslumanns í júní 2014 eða fyrir ellefu mánuðum,“ segir Helga Vala en bréfið er um kæru skjólstæðings hennar sem varðar barn. „Kæra er varðar barn á alla jafna að sæta flýtimeðferð innan stjórnkerfisins enda hagsmunir þess brýnir.“ Í umræddu bréfi segir að vegna fjölda mála ætli ráðuneytið að dráttur verði á afgreiðslu málsins og að óbreyttu megi búast við ákvörðun innan níu mánaða. „Þetta þýðir að biðin eftir úrskurði gæti orðið enn þá lengri ef það verður mikið að gera hjá ráðuneytinu,“ segir Helga Vala og bætir við að þetta sé mjög bagalegt fyrir bæði börn og foreldra. „Það bara verður að fjölga starfsfólki innan ráðuneytisins til að annast kærumálin. Þetta er algjört ófremdarástand og hefur verið lengi.“
Mest lesið Alvarlegt rútuslys í Öxnadal Innlent Eldur logar í þaki Kringlunnar Innlent Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent Tónlistarmaðurinn Róbert Örn er fallinn frá Innlent Losuðu stúlku úr „prísund“ við Háskólabíó Innlent Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Innlent Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Fleiri fréttir Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Sjá meira