Fall á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum 20. febrúar 2009 11:10 Einn svekktur. Mynd/AFP
Gengi hlutabréfa hefur fallið víða um heim það sem af er dags. Lélegar uppgjörstölur fyrirtækja, sem hafa verið að skila sér í hús síðustu daga, skýra fallið að mestu leyti, að sögn Bloomberg-fréttastofunnar. Fréttastofan hefur eftir heimildamönnum sínum að fjárfestar óttist nú að kreppan verði dýpri og geti varað lengur en óttast hafi verið. Einbeiti stjórnendur fyrirtækja sér að því nú að laga til í rekstrinum til að halda sér á floti. FTSE-vísitalan í Bretlandi hefur fallið um 2,38 prósent, Dax-vísitalan í Þýskalandi um 3,29 prósent og CAC-40 vísitalan í Frakklandi um þrjú prósent. Gengisfall er sömuleiðis á norrænum hlutabréfamörkuðum. Minnst er lækkunin í kauphöllinni í Danmörku, eða 1,6 prósent. Að öðru leyti hefur hlutabréfavísitalan í Svíþjóð falli ð um 2,69 prósent, í Finnlandi um 2,26 prósent og í Noregi um 2,76 prósent. Nýja Úrvalsvísitalan (OMXI6) hefur á sama tíma fallið um 3,92 prósent.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira