Glaðbeittur auðkýfingur - brosir breitt eftir samkomulag við Kaupþing 20. september 2011 14:29 Vincent Tchenguiz er sáttur við stöðu sína samkvæmt heimildarmanni Guardian. Þessi mynd var þó tekin fyrir samkomulagið. „
Vincent brosir breitt núna," sagði heimildarmaður í viðtali við breska dagblaðið The Guardian þar sem fjallað er um samkomulag Vincent Tchenguiz við Kaupþing. Fram kom í fréttum í gær að Vincent og Kaupþing hefðu náð samkomulagi en skilanefnd Kaupþings vildi fá hlutabéf í meira en tug fyrirtækja auðkýfingsins. Á móti vildi Vincent rúmlega 270 milljarða í skaðabætur vegna falls bankans í október 2008. Bróðir Vincent, Robert Tchenguiz, fékk hátt í 300 milljarða króna lánaða hjá bankanum fyrir fall hans 2008. Hann var því stærsti lántakandi bankans. Í Guardian kemur fram að bankinn hafi í raun ekki átt neinna kosta völ en að komast að samkomulagi við Vincent þar sem stjórnin virðist ekki hafa vitað að aðrir bankar ættu veð í eignum Vincent. Þannig gat bankinn ekki gjaldfellt lán Vincent, því þá hefðu lán annarra banka sem áttu veð í eignum Vincent, gjaldfallið með þeim afleiðingum að Kaupþing fengi lítið sem ekkert upp í kröfur sínar. Það þýðir sem sagt að Kaupþing virðist hafa lánað Vincent milljarða fyrir verðlaus veð sem þrotabú Kaupþings sýpur nú seyðið af. Nánari útfærslu samkomulagsins hefur ekki verið gerð opinber en það þykir ljóst að mati Guardian að Vincent geti andað talsvert léttar eftir samkomulagið. Þess má geta að samkomulagið á ekki við bróðir Vincent. Þrotabúið þarf þó ekki að örvænta því eignir þess jukust um hundrað milljarða eins og fram kom í fréttum Vísis í gær.
Mest lesið Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Sjá meira