Viðskipti innlent

Heimila kaup Sam­kaupa á versluninni á Hólma­vík

Atli Ísleifsson skrifar
Verslun Kaupfélags Steingrímsfjarðar á Hólmavík.
Verslun Kaupfélags Steingrímsfjarðar á Hólmavík. Já.is

Samkeppniseftirlitið hefur lagt blessun sína yfir kaup Samkaupa á rekstri dagvöruverslunar Kaupfélags Steingrímsfjarðar á Hólmavík.

Þetta kemur fram í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins sem birt var á vef þess fyrr í vikunni. Í ákvörðuninni er rakið að vísbendingar séu til staðar um að Hólmavík og næsta nágrenni myndi sérstakan landfræðilegan markað.

„Á þessu svæði er aðeins starfrækt ein hefðbundin dagvöruverslun, hin selda verslun [Kaupfélags Steingrímsfjarðar]. Af þeim sökum er ljóst að vegna samrunans myndi ekki verða nein samþjöppun á hinum landfræðilega markaði málsins,“ segir í ákvörðuninni.

Næsta dagvöruverslun í klukkutíma fjarlægð

Næstu verslanir séu á Drangsnesi, í 32 kílómetra fjarlægð, Reykhólum í 57 kílómetra fjarlægð og svo Búðardal í sjötíu kílómetra fjarlægð. Byggðarlagið sé því nokkuð afskekkt og tiltölulega langt í næstu hefðbundnu dagvöruverslun sem er Kjörbúðin Búðardal, eða um klukkutíma akstur.

„Ennþá lengra er í næstu lágvöruverðsverslanir sem er að finna í Borgarnesi í um tveggja klukkutíma fjarlægð. Að mati Samkeppniseftirlitsins bendir framangreint því til þess að sú aukning sem verður á samþjöppun á landfræðilega markaðnum Norðurland vestra í kjölfar samrunans gefi ekki rétta mynd af samkeppnislegum áhrifum samrunans.“

Ekki röskun á samkeppni

Samkeppniseftirlitið telur því að með samrunanum muni ekki verða breyting á stöðu verslunar KSH á Hólmavík en verslunin hafi hingað til verið eina hefðbundna dagvöruverslunin á svæðinu. 

„Þá eru ekki vísbendingar um að kaup Samkaupa á versluninni leiði til þess að samkeppni raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Ekki eru því forsendur til þess að aðhafast vegna samrunans,“ segir í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins.

Samkaup starfar á dagvörumarkaði og rekur verslanir um land allt undir vörumerkjunum Nettó, Krambúð, Kjörbúðin, Samkaup Strax, Seljakjör og Iceland. KSH rekur hina seldu dagvöruverslun auk þess sem félagið rekur byggingarvörudeild undir nafninu Pakkhúsið á Hólmavík.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×