Eigið fé bankanna gæti þurrkast út vegna málsóknar Höskuldur Kári Schram skrifar 11. september 2009 18:48
Eigið fé nýju bankanna þurrkast upp fallist dómstólar á þau rök að gengistryggð lán hafi verið ólögmæt. Bankarnir þurfa þá að afskrifa allt að 150 milljarða króna vegna fasteigna- og bílalána. Nokkur prófmál eru nú í gangi á hendur bönkunum þar sem því er haldið fram að gengistryggð lán vegna fasteigna og bifreiðakaupa hafi verið ólögleg. Mörg þúsund einstaklingar tóku gengistryggð lán en lánin hækkuð gríðarlega þegar krónan hrundi á síðasta ári. Björn Þorri Viktorsson, lögmaður, sagði í samtali við fréttastofu í dag að fari svo að dómstólar fallist á þau rök að gengistryggð lán hafi verið ólögmæt þurfi bankarnir að færa lánin niður í upphaflegan höfuðstól. Gengistryggð fasteigna og bílalán nema um 300 milljörðum króna miðað við núverandi gengi og eru þessi lán hluti af eignasöfnum bankanna. Þessi upphæð lækkar niður í 150 milljarða verði lánin dæmd ólögleg sem gerir það að verkum að eigið fé bankanna þurrkast upp. Viðskiptaráðherra segir að gengið sé út frá því að lánin hafi verið lögleg. „það verður tekið á niðurstöðunni þegar hún kemur en sem stendur þá er gert ráð fyrir því að þessi lán séu lögleg," segir Gylfi Magnússon. Bankarnir hafi þó eitthvað svigrúm til að taka á sig slíkt tap. „Það er væntanlega á pappírnum talsvert. Tap en það má kannski hafa það í huga að vegna þess hve illa margir lántakendur eru staddir þá hafa menn væntanlega gert ráð fyrir því að það yrðu veruleg afföll hvort eð er jafnvel þó að lánin teldust lögleg," segir Gylfi að lokum.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Allir Bónus vanilludropar innkallaðir Neytendur Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira