Viðskipti erlent

Störfum fækkar í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í tæp tíu ár

Samúel Karl Ólason skrifar
Um 90 prósent Bandaríkjamanna búa við einhverskonar takmarkanir á ferðafrelsi þeirra vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar.
Um 90 prósent Bandaríkjamanna búa við einhverskonar takmarkanir á ferðafrelsi þeirra vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar. AP/Sue Ogrocki

Endir hefur verið bundinn á nærri því tíu ára samfleytta fjölgun starfa í Bandaríkjunum. Miðað við nýjustu tölur yfirvalda þar hefur störfum fækkað um minnst 701 þúsund og atvinnuleysi fór úr 3,5 prósentum í 4,4 prósent. Í rauninni eru töpuð störf þó mun fleiri þar sem tölurnar taka ekki tillit til síðustu tveggja vikna. Á þeim tíma hafa um tíu milljónir manna sótt um atvinnuleysisbætur.

Óttast er að atvinnuleysi í Bandaríkjunum gæti orði allt að fimmtán prósent í þessum mánuði.

Sjá einnig: 6,6 milljónir sækja um atvinnuleysisbætur á einni viku

Á þessum tíu árum hefur efnahagskerfið Bandaríkjanna bætti við sig um 22,8 milljónum starfa. Hagfræðingar búast nú við því að sama skýrsla fyrir apríl, sem birt verður í upphafi maí, muni sýna að öll þessi störf hafi tapast.

AP fréttaveitan segir rúmlega 90 prósent Bandaríkjamanna búa við einhvers konar takmarkanir á ferðafrelsi þeirra vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar. Það hafi leitt til lokunnar fjölmargra veitingastaða, kvikmyndahús, verksmiðja, líkamsræktarstöðva og annars konar fyrirtækja. Nánast ekkert fyrirtæki sé starfrækt að fullu.

Hagfræðingar sem fréttaveitan hefur rætt við segja endurkomu hagkerfisins að heimsfaraldrinum loknum, velta á því hvort fyrirtæki komist í gegnum þessa erfiðu tíma og geti þannig ráðið fólk til baka þegar og ef allt fer í fyrra horf.

Verði mörg fyrirtæki gjaldþrota myndi það halda atvinnuleysi háu og lengja það tímabil sem það tæki fyrir hagkerfið að jafna sig.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×