Til bjargar Starbucks 23. júlí 2008 06:00 Flest kaffihúsin sem loka á eru í úthverfum og smábæjum. AFP/Markaðurinn
Mörgum fastagestum kaffihúsakeðjunnar Starbucks varð brugðið þegar þeir sáu að loka átti „þeirra“ Starbucks-kaffihúsi. Einhverjir viðskiptavinir kaffihúsakeðjunnar hafa því skipulagt herferðir og dreift undirskriftalistum til að fá stjórnendur fyrirtækisins til að endurskoða ákvörðun sína. Í síðustu viku birti fyrirtækið lista yfir þau kaffihús sem loka á, en loka á 600 kaffihúsum í Bandaríkjunum. Þó að flest kaffihúsin sem loka á séu í Flórída, Kalíforníu og Texas, munu önnur strjálbýlli ríki Bandaríkjanna þó tapa hlutfallslega mest. Þannig mun Suður-Dakóta missa þriðjung allra Starbucks-kaffihúsa sinna við lokunina, en nú rekur keðjan 12 kaffihús í ríkinu. Skiptar skoðanir eru um Starbucks-kaffihúsakeðjuna, en hún hefur oft verið gagnrýnd fyrir að grafa undan litlum sjálfstæðum kaffihúsum. Á móti kemur að í mörgum smábæjum og úthverfum þykir koma Starbucks-kaffihúss ákveðin tímamót. Los Angeles Times greindi einnig frá því á þriðjudag að í mörgum hverfum L.A. hafi verið litið á veru Starbucks-kaffihúsa sem ákveðin gæðastimpil, og að þau hafi haft jákvæð áhrif á fasteignaverð í nágrenninu. Fyrirtækið segir að of geyst hafi verið farið í opnun nýrra kaffihúsa undanfarin ár, og viðvarandi taprekstur sé á öllum þeim kaffihúsum sem loka á. Áætlað er að 12.000 manns munu missa vinnuna vegna þessara aðgerða. - msh
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Apple hættir framleiðslu Mac Pro-borðtölvunnar Tímamótadómur: Fyrirtækin sjálf ábyrg en ekki notendur OpenAI kippir Sora úr sambandi Orkukreppan vegna Írans trompar öll fyrri skakkaföll Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Árásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Fellur frá málarekstri og býður Íslendingum afslætti í sáttargjöf Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Sjá meira