Vísa samrunaviðræðum á bug 15. nóvember 2007 13:01 Ein véla Delta Airlines. Mynd/AFP
Orðrómur hefur verið uppi um að bandarísku flugfélögin Delta og United Airlines eigi í viðræðum sem geti leitt til samruna þeirra. Gengi það eftir yrði til stærsta flugfélag í heimi. Forstjórar flugfélaganna vísa því hins vegar á bug að samrunaviðræður eigi sér stað. Fréttastofa Assocated Press bendir að þrátt fyrir að forstjórar flugfélaganna vísi þessu á bug hafi orðrómur um hið gagnstæða lengi legið í loftinu. Fréttastofan vísar til bréfs forstjóranna, þar sem fram kemur að flugfélög verði að bregðast við háum olíuverði og auknum rekstrarkostnaði með einhverjum hætti. Flugfélögin hafa átt við rekstrarvanda að stríða og fór Delta í greiðslustöðvun fyrir tveimur árum. Fyrir lá yfirtökutilboð í félagið frá bandaríska flugfélaginu U.S. Airways undir lok síðasta árs en því var hafnað á þeim forsendum að tilboðið endurspeglaði ekki raunvirði félagsins. Stjórn flugfélagsins sagðist frekar ætla að endurskipuleggja reksturinn og hagræða í bókum sínum.Fleiri flugfélög voru sömuleiðis sögð í samrunahugleiðingum, svo sem United Airlines. Öllum samrunaáætlunum var hins vegar vísað út af borðinu þar til nú.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira