Ferðalög

Perlur Íslands: „Ógleymanlegt að hvíla sig í lyngbrekku hjá þessari náttúruperlu“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Katrín við Dynjanda fyrir allnokkrum árum. 
Katrín við Dynjanda fyrir allnokkrum árum. 

„Það er mjög erfitt fyrir mig að nefna einn uppáhalds ferðamannastað á Íslandi því þeir eru margir sem eiga sérstakan stað í mínu hjarta,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sem hefur í áraraðir ferðast mikið innanlands.

„Melrakkaslétta, Snæfellsnes, Djúpivogur; mjög ólíkir staðir en allir stórkostlegir á sinn hátt. En ef ég geri atlögu að því að nefna einn stað verð ég að nefna foss og af mörgum góðum nefni ég Dynjanda, einn formfegursta foss landsins sem blasir við víða úr Arnarfirði.“

Djúpivogur á fallegum sumardegi.Vísir/Vilhelm

Hún segir fossinn vera í senn fagur og mikilfenglegur á sama tíma.

„Við fjölskyldan vörðum þjóðhátíðardeginum fyrir áratug á Hrafnseyri við Arnarfjörð sem var spegilsléttur þann daginn og heimsóttum þá fossinn. Íslensk náttúra gerist varla betri, og ógleymanlegt að hvíla sig í lyngbrekku hjá þessari náttúruperlu.“

Perlur leynast víða á Íslandi og það er ljóst að sumarið 2020 verða Íslendingar á ferð og flugi um alla landshluta. Vísir verður á flakki með landanum í sumar. Veist þú um perlu sem landsmenn ættu ekki að missa af á ferðalagi? Segðu okkur frá og sendu okkur myndir á netfangið ritstjorn@visir.is. Við birtum valdar frásagnir hér á Vísi.


Tengdar fréttir








×