Atvinnulíf

Samfélagsleg ábyrgð: Tíu ráð fyrir vinnuveitendur

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Dropinn holar steininn og Eva Magnúsdóttir er iðin við að hvetja fyrirtæki og opinbera aðila til aðgerða í loftlagsmálum og að innleiða hjá sér stefnu í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Dropinn holar steininn og Eva Magnúsdóttir er iðin við að hvetja fyrirtæki og opinbera aðila til aðgerða í loftlagsmálum og að innleiða hjá sér stefnu í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Vísir/Vilhelm

Eva Magnúsdóttir framkvæmdastjóri og ráðgjafi hjá Podium er ein þeirra sem hvetur til þess að tekið verði á loftlagsmálunum með sömu aðferðum og í baráttunni við kórónuveiruna: Með stærri skrefum þar sem samfélagslegri ábyrgð er gert átt undir höfði í stefnu hvers vinnustaðar.

„Nú þegar eru mörg íslensk fyrirtæki og framsýn sveitarfélög farin að vinna í anda heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Í byrjun ársins ákváðu Sameinuðu þjóðirnar að hraða innleiðingu heimsmarkmiðanna,“ segir Eva og bætir við „Það er mjög mikilvægt fyrir fyrirtæki að skoða í sinni starfsemi hvar þau geti haft mest áhrif. 

Heimsmarkmiðin skilja engan eftir, huga að heilsu, jörðinni, atvinnulífinu, nýsköpun, menntun og sjálfbærni.“

Fyrir skömmu kynnti Eva tíu ráð fyrir vinnuveitendur á fjölmennum fjarfundi á vegum SVÞ. Þessi tíu ráð eru eftirfarandi:

1. Horfðu í eigin barm og spurðu hvernig get ég verið ábyrgari í lífinu, fyrirtækinu eða sveitarfélagi?

2. Láttu gera úttekt á samfélagslegri ábyrgð hjá fyrirtækinu, skoðaðu sóun í allri virðiskeðjunni og verslaðu við ábyrg fyrirtæki.

3. Búðu til mælikvarða eða notaðu alþjóðlega mælikvarða eins og GRI, UFS eða heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

4. Styddu starfsmenn í að vinna heima einn til tvo daga á viku og minnkaðu þar með umferðarþunga og kolefnisfótspor.

5. Nýttu netið meira í fundi, keyrðu minna og fljúgðu minna. Hjólaðu, hlauptu og labbaðu meira og minnkaðu kolefnisfótspor.

6. Nýttu hlutina betur og hugaðu að möguleikum á hringrásarhagkerfi -nýsköpunarhugmyndir um nýtingu á eldri hlutum. „Þarf ég þetta?“ er ágætis spurning.

7. Fáðu aðstoð til þess að breyta viðhorfi og virkja starfsmenn með öflugri breytingastjórnun.

8. Kynntu það sem fyrirtækið/sveitarfélagið er að gera innávið og útá við.

9. Sýndu umhyggju fyrir öðrum, vertu vinsamlegri við vinnufélaga, brostu, hrósaðu og hringdu oftar í vini og fjölskyldumeðlimi.

10. Samantekt: Greindu stöðuna, sinntu starfinu heima, minnkaðu sóun, notaðu mælikvarða, settu markmið, innleiddu, sýndu umhyggju og sýndu stöðugar umbætur.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×