Gengi krónunnar svipað fyrir fyrir tæpu ári 12. maí 2011 12:38
Krónan hefur ekki verið veikari gagnvart helstu viðskiptamyntum í tæpt ár. Hefur hún að jafnaði veikst um ríflega 4% frá upphafi árs, en kúfurinn af þeirri veikingu kom reyndar fram á fyrstu vikum ársins. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að það sem af er maímánuði hefur krónan veikst lítillega gagnvart körfu helstu gjaldmiðla, en nokkur munur er hins vegar á þróuninni eftir því til hvaða viðskiptamyntar er horft. Þannig hefur krónan heldur styrkst gagnvart evru á tímabilinu en gagnvart Bandaríkjadollar og japönsku jeni hefur hún veikst um nærri 4%, og gagnvert bresku pundi nemur veikingin í maí rúmu prósentustigi. Evran kostar nú 163,4 kr., Bandaríkjadollar kostar 115,4 kr., pundið 187,7 kr. og jenið 1,426 kr. Millibankamarkaður með gjaldeyri hér á landi fer fram í viðskiptum með evru gegn krónu, og fylgir gengisþróun krónu gagnvart öðrum gjaldmiðlum evru í meiri mæli en öðrum gjaldmiðlum til skamms tíma. Millibankamarkaðurinn er raunar enn afar smár í sniðum og líða oft nokkrir dagar milli viðskipta þar. Þannig nam heildarvelta í aprílmánuði ríflega 5,5 milljörðum kr. og þar af keypti Seðlabankinn evrur fyrir tæpan milljarð. Seðlabankinn hefur haldið uppteknum hætti og keypt 1,5 milljónir evra í viku hverri það sem af er ári. „Bankinn hefur gefið í skyn að honum væri ekki á móti skapi að auka þessi kaup, en væntanlega hefur veiking krónunnar orðið til þess að draga úr áhuganum á slíkri aukningu. Verður fróðlegt að fylgjast með því hvort aukið gjaldeyrisinnstreymi með sumrinu muni hvetja bankann til að bæta í þessi kaup sín, en hann er væntanlega undir nokkrum þrýstingi frá stjórnvöldum að standa ekki gegn styrkingu krónunnar eftir þann fyrirvara sem settur var í kjarasamninga um slíka styrkingu,“ segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Valin vinsælust: „Lopapeysan og þetta reddast sjarminn einfaldlega selur“ Atvinnulíf Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Sjá meira