Ólafur F. tjáir sig um veikindi sín 26. janúar 2008 11:37 Ólafur F. Magnússon.
Ólafur F. Magnússon, nýkjörinn borgarstjóri Reykjavíkur, ræðir í fyrsta sinn opinberlega um veikindi sín sem gerðu það að verkum að hann var að mestu fjarverandi frá borgamálunum á síðasta ári. Í viðtölum í Fréttablaðinu og 24 stundum segist hann hafa verið „nokkuð langt niðri á tímabili," og að hann hafi sótt sér „viðeigandi aðstoð og aðhlynningu" til að sigrast á veikindunum. Mikið hefur verið rætt og ritað um heilsufar Ólafs allar götur síðan hann tók sér frí frá borgarmálunum en Ólafur hefur ávallt neitað að tjá sig um málið við fjölmiðla og hefur sagt spurningar í þá átt óviðeigandi. „Það er rétt að ég hef lent í heilsufarslegum mótbyr og erfiðleikum í einkalífi sem haga ekki verið til þess að auka gleði mína heldur þvert á móti," segir Ólafur í viðtali við Kolbrúnu Bergþórsdóttur í 24 stundum í dag. „Ég var nokkuð langt niðri á tímabili, en sótti mér viðeigandi aðstoð og aðhlynningu til að sigrast á þessum veikindum. Þúsundir Íslendinga lenda í svipuðum erfiðleikum á hverju ári, en snúa fullfrískir aftur út í samfélagið." Ólafur bætir því við í viðtalinu við Kolbrúnu að honum finnist hvorki hann né aðrir eiga skilið að brugðist sé við andlegum veikindum með jafn neikvæðum hætti og við höfum séð sumstaðar undanfarna daga. Hann tekur dæmi af grein í DV í gær sem hann kallar aðför að mannorði sínu. Hann segir flest í þeirri grein sem ekki sé byggt á tilvitnun í heimildir hreina lygi. „Veikindi eins og mín hafa hrjáð marga stjórnmálamenn án þess að þeir yrðu lagðir í einelti sem er nánast það sem sem ég hef orðið fyrir þar sem illgirni og ósannindi ráða ríkjum," segir Ólafur í Fréttablaðinu. „Ég hef öðalst vinnufærni á ný og mun vafalaust sanna það með mínum verkum. Þetta tók meiri tíma hjá mér en vonir stóðu til en það var vegn mikils mótlætis sem ég varð fyrir en þau voru slík að enginn gæti siglt í gegnum þau án þess að bogna tímabundið." Ólafur bætir við í Fréttablaðinu: „Ég vona aðeins að þeir sem hvað óvægilegast hafa reynt að vega að mér geri sér grein fyrir því að þessar ósæmilegu persónulegu árásir særa alla fjölskyldu mína."
Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira