Segja að lán heimila hafi verið lækkuð um 164 milljarða frá hruni 14. október 2011 14:07 Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri SFF. Mynd/HARI
Lán heimila höfðu í lok ágúst 2011 verið færð niður um 163,6 milljarða króna frá bankahruni. Í ágúst nam niðurfærsla húsnæðislána rétt tæpum 22 milljörðum króna að því er fram kemur í tilkynningu frá Samtökum fjármálafyrirtækja sem hafa aflað upplýsinga meðal aðildarfélaga sinna, hjá Íbúðalánasjóði og lífeyrissjóðum. „Í lok júlí nam niðurfærslan 141,9 milljörðum króna. Í þeim tölum sem SFF sendi frá sér síðast var niðurfærsla vegna endurútreiknaðra bílalána ofmetin um rúma tvo milljarða króna. Þetta hefur nú verið leiðrétt en það hefur ekki áhrif á heildartöluna. Niðurfærslur húsnæðislána í ágúst námu 8,6 milljörðum vegna 110% leiðarinnar og um 13,4 milljörðum vegna endurútreiknings.,“ segir ennfremur. „Til viðbótar þeirri niðurfærslu sem átt hefur sér stað með 110% aðlögun húsnæðislána, sértækri skuldaaðlögun og endurreikningi á ólögmætum gengistryggðum húsnæðislánum til einstaklinga, hafa fjármálafyrirtæki boðið upp á önnur úrræði sem lækkað hafa eftirstöðvar skulda viðskiptavina þeirra. Sumir bankar hafa endurgreitt hluta vaxta og aðrir veitt vaxtaafslátt við endurfjármögnun lána til að koma til móts við viðskiptavini. Þær tölur eru ekki hluti ofangreindrar heildartölu.“ „Í ágúst voru skráðar ríflega 2000 nýjar umsóknir til banka, Íbúðalánasjóðs og lífeyrissjóða um hina svokölluðu 110% leið. Samtals hafa borist 15.600 umsóknir um 110% leiðina þar af voru um 1500 mál afgreitt fyrir 1. desember 2010 á grundvelli hliðstæðs úrræðis sem einstakar fjármálstofnanir buðu. Niðurfærsla samkvæmt þessu úrræði nam um 8,6 milljarða króna í mánuðinum og nemur nú samtals 27,2 milljörðum. Enn eru ríflega 5000 mál í vinnslu í 110% leiðinni, langstærstur hluti þeirra hjá ÍLS eða 3.344 mál. Sjóðurinn hefur samþykkt 1.065 erindi og hafnað 914. Niðurfærsla ÍLS vegna þessa úrræðis nam í lok ágúst rétt innan við þremur milljörðum. Lífeyrissjóðir hafa hafnað 275 beiðnum af 465. Samþykktar beiðnir eru 80 og niðurfærsla nemur 214 milljónum. Ljóst er að niðurfærsla á lánum vegna þessa úrræðis á eftir að hækka verulega hjá þessum lánveitendum,“ segir einnig. „Tæplega 1.400 heimili hafa sótt um sértæka skuldaaðlögun. Samþykktar hafa verið ríflega 700 umsóknir en tæplega 90 verið hafnað, auk þess sem um 600 mál eru enn í vinnslu. Heildarniðurfærsla vegna þessa úrræðis, miðað við ágústlok, er tæpir 5,6 milljarðar króna. Fjármálafyrirtækin hafa lokið endurútreikningi 70 þúsund gengistryggðra lána. Þar af eru rúmlega 12.700 fasteignalán og rúm 57.000 lán vegna bifreiðaviðskipta. Heildarniðurfærsla fasteignaveðlána vegna endurútreiknings var í lok ágúst rúmir 92 milljarðar króna. Lán vegna bifreiðaviðskipta hafa verið færð niður um 38,4 milljarða við endurútreikning,“ segir að lokum en SFF bendir á að hafa beri í huga þegar þessar tölur eru skoðaðar að lántakar kunna í sumum tilvikum að hafa nýtt sér fleiri en eitt af þeim úrræðum sem staðið hafa til boða.
Mest lesið Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Komin með ný nöfn Viðskipti innlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Viðskipti innlent Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Sjá meira