Byrjaði á bekknum en skoraði samt níu mörk í leiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. ágúst 2018 18:00 Wang Shanshan. Vísir/Getty
Kínverska knattspyrnukonan Wang Shanshan hefur heldur betur vakið athygli fyrir frammistöðu sína á Asíuleikunum. Wang Shanshan er markahæsti leikmaður leikanna með ellefu mörk í þremur leikjum. Stærsta fréttin er þá frammistaða hennar í leik á móti Tadsíkistan, leik þar sem hún byrjaði ekki einu sinni inná. Hún hefur skorað í öllum þremur leikjum Kínverja en það er frammistaða hennar á 34 mínútum á móti Tadsíkistan sem hefur tryggt henni fyrirsagnir út um allan heim. Wang Shanshan skoraði nefnilega 9 mörk í 16-0 sigri Kína á Tadsíkistan en lið Tadsíkistan tapaði öllum þremur leikjum sínum í riðlakeppninni og var með -37 í markatölu. Wang Shanshan kom ekki inná völlinn í leiknum á móti Tadsíkistan fyrr en á 56. mínútu. Þá var staðan orðin 6-0 og úrslitin löngu ráðin. Wang Shanshan skoraði fyrsta markið sitt eftir átta mínútna leik og 29 mínútum síðar hafði hún bætt við átta mörkum til viðbótar. Kínverska liðið tók alls 65 skot í leiknum þar af hittu 33 þeirra markið.China's Wang Shanshan is surely a shoo-in for the Asian Games golden boot after an extraordinary personal display against Tajikistan. More: https://t.co/i6elDUYaRypic.twitter.com/brPqkZAPRa — BBC Sport (@BBCSport) August 24, 2018Wang Shanshan skaut 11 sinnum í leiknum, tíu skot fóru á markið og níu þeirra enduðu í netinu. Hún fékk í kjölfarið viðurnefnið „Nine-Goal Diva“ í erlendum fjölmiðlum eða níu marka dívan. Liðsfélagi hennar, Rong Zhao, skoraði reyndar fimm mörk í leiknum en frammistaða hennar féll algjörlega í skuggann á markaveislu Wang Shanshan.The Chinese women's football team defeated Tajikistan 16-0. Among them, Wang Shanshan, who came off the bench, scored 9 yuan and became the "9-ball day" of the Chinese women's football team. pic.twitter.com/LI6N3tuirO — ShanghaiEye (@ShanghaiEye) August 21, 2018Wang Shanshan skoraði ekki mikið framan af landsliðsferli sínum en fór að raða inn mörkum í þjálfaratíð Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar. Wang Shanshan skoraði í fjórum landsleikjum á meðan Sigurður Ragnar var þjálfari og hefur síðan haldið uppteknum hætti eftir að Jia Xiuquan tók við.
Fótbolti Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Veðmálasvindl tengt Ballon d'Or á borði lögreglu Hópurinn sem gæti komið Íslandi á EM Dreymir um að sjá framherjapar Íslands í ensku úrvalsdeildinni „Ef menn geta ekki hagað sér núna þá er eitthvað mikið að“ „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Arnar kynnti landsliðshópinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Sjá meira