Nýr sæstrengur ekki tekinn í notkun á árinu Haraldur Guðmundsson skrifar 4. apríl 2014 20:45 Áætlað er að strengur Emerald Networks komi í land við Grindavík. Vísir/AFP
Sæstrengur Emerald Networks, sem á að tengja Ísland við Evrópu og Norður-Ameríku, verður ekki tekinn í notkun á seinni hluta þessa árs eins og áætlanir forsvarsmanna verkefnisins gerðu ráð fyrir. Áætlað er að taka strenginn í notkun á næsta ári en nákvæm tímasetning liggur ekki fyrir.Björn Brynjúlfsson, framkvæmdastjóri Emerald Networks á Íslandi og starfsmaður Thule Investments, segir fjármögnun verkefnisins hafa seinkað lagningu strengsins. „Við höfum verið að vinna í forsölum á bandvídd á strengnum og náð í nokkra stóra viðskiptavini og það gengur vel,“ segir Björn. Strengurinn, sem nefnist Emerald Express, hefur verið í undirbúningi frá árinu 2011. Verkefnið er alþjóðlegt en Thule Investments sér um fjármögnun þess hér á landi og Vodafone á Íslandi hefur þegar gert samning um notkun á strengnum. Fjárfestingin hljóðar upp á 45 milljónir dala, jafnvirði 5,1 milljarðs króna. Verkið verður að sögn Björns að mestu fjármagnað ef erlendum fjárfestum en innlend fjármögnun gæti numið allt að tíu prósentum. Strengurinn á að sögn forsvarsmanna Emerald að auka fjarskiptaöryggi hér á landi og skapa samkeppni innan geira þar sem einokun hafi ríkt. Hann eigi einnig að stuðla að áframhaldandi uppbyggingu gagnaversiðnaðar hér á landi.Borealis Data Center ehf., sem forsvarsmenn Thule Investments koma að, og upplýsingatæknifyrirtækið Advania, skoða nú byggingu nýrra gagnavera og þar er meðal annars horft til komu sæstrengsins. Nokkrar lóðir eru sagðar koma til greina en bæði Borealis og Advania horfa til svæðis við Fitjar í Reykjanesbæ og Borealis hefur nú þegar fengið úthlutað lóðum þar. „Við lítum á þetta sem spennandi svæði þar sem eru að verða til innviðir fyrir gagnaver og við erum að taka þátt í þeirri uppbyggingu meðal annars í gegnum Emerald,“ segir Björn. Eyjólfur Magnús Kristinsson, framkvæmdastjóri hjá Advania, staðfestir að fyrirtækið sé að skoða lóðir á svæðinu undir nýtt tvö þúsund fermetra gagnaver. „Við höfum verið að skoða þessa staðsetningu en það hefur ekki verið gengið frá neinu og aðrir staðir koma einnig til greina,“ segir Eyjólfur.
Mest lesið Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Flug á sex þúsund krónur: easyJet tvöfaldar umsvif sín hérlendis Viðskipti innlent Borgar sig að leyfa fólki að borga það sem það vill Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent