Viðskipti innlent

Nýr sæstrengur ekki tekinn í notkun á árinu

Haraldur Guðmundsson skrifar
Áætlað er að strengur Emerald Networks komi í land við Grindavík.
Áætlað er að strengur Emerald Networks komi í land við Grindavík. Vísir/AFP
Sæstrengur Emerald Networks, sem á að tengja Ísland við Evrópu og Norður-Ameríku, verður ekki tekinn í notkun á seinni hluta þessa árs eins og áætlanir forsvarsmanna verkefnisins gerðu ráð fyrir. Áætlað er að taka strenginn í notkun á næsta ári en nákvæm tímasetning liggur ekki fyrir.

Björn Brynjúlfsson, framkvæmdastjóri Emerald Networks á Íslandi og starfsmaður Thule Investments, segir fjármögnun verkefnisins hafa seinkað lagningu strengsins.

„Við höfum verið að vinna í forsölum á bandvídd á strengnum og náð í nokkra stóra viðskiptavini og það gengur vel,“ segir Björn.

Strengurinn, sem nefnist Emerald Express, hefur verið í undirbúningi frá árinu 2011. Verkefnið er alþjóðlegt en Thule Investments sér um fjármögnun þess hér á landi og Vodafone á Íslandi hefur þegar gert samning um notkun á strengnum.

Fjárfestingin hljóðar upp á 45 milljónir dala, jafnvirði 5,1 milljarðs króna. Verkið verður að sögn Björns að mestu fjármagnað ef erlendum fjárfestum en innlend fjármögnun gæti numið allt að tíu prósentum.

Strengurinn á að sögn forsvarsmanna Emerald að auka fjarskiptaöryggi hér á landi og skapa samkeppni innan geira þar sem einokun hafi ríkt. Hann eigi einnig að stuðla að áframhaldandi uppbyggingu gagnaversiðnaðar hér á landi.

Borealis Data Center ehf., sem forsvarsmenn Thule Investments koma að, og upplýsingatæknifyrirtækið Advania, skoða nú byggingu nýrra gagnavera og þar er meðal annars horft til komu sæstrengsins. Nokkrar lóðir eru sagðar koma til greina en bæði Borealis og Advania horfa til svæðis við Fitjar í Reykjanesbæ og Borealis hefur nú þegar fengið úthlutað lóðum þar. 

„Við lítum á þetta sem spennandi svæði þar sem eru að verða til innviðir fyrir gagnaver og við erum að taka þátt í þeirri uppbyggingu meðal annars í gegnum Emerald,“ segir Björn. 

Eyjólfur Magnús Kristinsson, framkvæmdastjóri hjá Advania, staðfestir að fyrirtækið sé að skoða lóðir á svæðinu undir nýtt tvö þúsund fermetra gagnaver. 

„Við höfum verið að skoða þessa staðsetningu en það hefur ekki verið gengið frá neinu og aðrir staðir koma einnig til greina,“ segir Eyjólfur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×