Phil & Sön rekur Dani og ræður Pólverja í vinnu 14. febrúar 2008 12:16
Verktakafyrirtækið E. Phil % Sön hefur rekið danska verkamenn sín og ráðið pólska í staðinn við vinnu við byggingu Copenhagen Towers í Örestaden. Um er að ræða eitt stærsta byggingarverkefnið í Kaupmannahöfn í ár. Phil & Sön hefur ráðið pólska fyrirtækið Eurotech sem undirverktaka að verkinu og á Eurotech að útvega pólska verkamenn til þess. Þessy mótmælir danska verkalýðshreyfingin sem segir að Eurotech borgi fólki sínu laun sem eru undir lágmarkstöxtum í Danmörku. Á sama tíma hefur Phil & Sön rekið sjö danska verkamenn sína og ber við verkefnaleysi. Einn þeirra reknu á að baki 20 ára starfsferil hjá verktakanum. Halldór Ragnarsson forstjóri Phil & Sön segir í samtali við Börsen að hann skilji vel að verkamennirnir séu skúffaðir yfir því að vera reknir. "Þetta er bara dæmi um slæma tímasetningu," segir Halldór. "Þegar við hófum byggingu á Copenhagen Towers fyrir áramótin vorum við ekki með danska verkamenn á lausu í verkið. Því réðum við Pólverjanna. Við getum ekki bara hent pólska fyrirtækinu í burtu nú þegar framkvæmdir eru hafnar." Það kemur ennfremur fram í máli Halldórs að nokkur spennandi verkefni séu í augsýn hjá Phil & Sön. "Og þá vona ég að við höfum þörf fyrir þessa dönsku verkamenn okkar á ný," segir Halldór.
Mest lesið Getur verið vandræðalegt að byrja allt í einu að syngja í Krónunni Atvinnulíf Sjá rukkun og „sirka tilboð“ gjörólíku ljósi Neytendur Mjög leiðinlegt mál en tilboðið hafi aldrei verið samþykkt Neytendur Rafmyntir hrynja í verði eftir tollahótanir Viðskipti erlent Ekkja í Hafnarfirði missti af íbúð þrátt fyrir samþykki Neytendur Vill að nýtt flugfélag taki á loft næsta sumar Viðskipti innlent Ekki ósanngjarnt af flugfélagi að láta viðskiptavin greiða eigin mistök Neytendur „Starfsfólkið sem eftir er vegnar oft verr andlega heldur en fólkinu sem hættir“ Atvinnulíf Rafmagnað fyrsta stefnumót við Nissan Ariya Samstarf Ferðamaður sem sá Þingvelli í myrkri fær endurgreitt að hluta Neytendur Fleiri fréttir Rafmyntir hrynja í verði eftir tollahótanir Herða hreðjatakið á birgðakeðjum Vesturlanda Virði gulls í methæðum Fyrrverandi forstjóri félags í eigu Íslendinga dæmdur fyrir fjárdrátt Strava stefnir Garmin AMD upp um fjórðung eftir risasamning við OpenAI Boeing sagt byrjað að þróa arftaka 737 max-þotunnar Rúmlega þriðjungs samdráttur í olíuvinnslu í Rússlandi Burger King opnar fyrsta staðinn á Grænlandi Eigandinn hættir sem forstjóri Trump setur tolla á lyf, vörubíla og húsgögn Murdoch-feðgar verði meðal kaupenda TikTok Ben kveður Jerry Nálgast samkomulag um TikTok Breytingar hjá Microsoft koma fyrirtækinu hjá sektum Ellison klórar í hælana á Musk Danski lyfjarisinn að baki Ozempic segir upp þúsundum manna Útvaldi sonurinn tryggir sér stjórn Murdoch-veldisins Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta áratug Vara við „Lafufu“ Framkvæmdastjóri Nestlé látinn fara í kjölfar ástarsambands Sjá meira