Fótbolti

Fimleikafélagið: Fjalarsleikarnir og menn æfðu miðið

Anton Ingi Leifsson skrifar
Brynjar Ásgeir Guðmundsson með áhugaverð gleraugu á sér.
Brynjar Ásgeir Guðmundsson með áhugaverð gleraugu á sér. vísir

Þriðja þáttaröðin í Fimleikafélaginu heldur áfram að rúlla og nú er það fimmti þátturinn í röðinni. Liðinu hefur verið fylgt á eftir í æfingaferð í Flórída.

Í fimmta þættinum er fylgst með Fjalarsleikunum. Þar keppa leikmenn félagsins í alls kyns greinum en markmannsþjálfarinn Fjalar Þorgeirsson hafði veg og vanda fa uppsetningu leikanna.

Það var skipt í fjögur lið; elstir, gamlir, ungir og yngstir en ýmist var keppt í greinum þar sem allir þurftu að gera eða liðin þurfu að velja einn eða tvo.

Þáttinn í heild sinni má sjá hér að neðan.

Klippa: Fimleikafélagið: 5. þáttur



Fleiri fréttir

Sjá meira


×