Starfsfólk Landsbankans fær 13. mánuðinn í jólagjöf Hafsteinn Hauksson skrifar 18. desember 2011 19:00
Landsbankinn er eini bankinn sem innir sérstaka auka launagreiðslu af hendi í desember, en hann greiðir öllum starfsmönnum viðbótarmánuð á meðan aðrir láta jólagjafir nægja. Stóru bankarnir færa starfsfólki sínu allir glaðning þessi jólin að sögn upplýsingafulltrúa þeirra, þó þeir séu misumfangsmiklir. Hjá Arion banka verður enginn viðbótarjólabónus greiddur út, en starfsmenn fá matarkassa að gjöf með ýmislegu góðgæti að verðmæti um tíu til fimmtán þúsund krónur auk Arion banka gjafakorts með þrjátíu þúsund króna inneign. Íslandsbanki greiðir heldur engin sérstök viðbótarlaun, en upplýsingafulltrúi bankans segir að þrátt fyrir að bankinn leggi áherslu á góð starfskjör hafi útgreiðsla jólabónusa ekki þótt fara saman við hagræðingaraðgerðir sem bankinn hefur ráðist í vegna sameiningar hans við Byr. Hins vegar kemur starfsfólk til með að fá jólagjöf, sem mun ekki vera yfirdrifin. Starfsfólk MP banka fær heldur engin viðbótarlaun. Hins vegar kemur það til með að fá jólagjöf sem ekki er umfram það sem gengur og gerist í öðrum fyrirtækjum að sögn upplýsingafulltrúa bankans, auk þess sem starfsfólkið fær einn aukafrídag vegna þess hve jólin eru stutt þetta árið. Landsbankinn er eini bankinn sem innir sérstaka aukagreiðslu af hendi, en auk jólagjafar líkt og í hinum bönkunum ákvað stjórn bankans að greiða öllum starfsmönnum viðbótarmánaðarlaun fyrir jólin. Upplýsingafulltrúi bankans segir að starfsmenn fái ekki greidda yfirvinnu og því megi líta á greiðsluna sem umbun fyrir þriggja ára álag við að sinna viðskiptavinum og skilmálabreyta þúsundum lána, svo dæmi séu nefnd.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira