Útboð í Blackstone hefst í dag 21. júní 2007 13:30 Frá einum viðskiptadegi í Kauphöllinni í New York í Bandaríkjunum.
Frumútboð hefst síðdegis í dag á bréfum í bandaríska fjárfestingasjóðum Blackstone Group í Bandaríkjunum. Gert er ráð fyrir því að sjóðurinn taki inn á milli 3,87 til 4,14 milljarða bandaríkjadala á sölu bréfanna. Það jafngildir tæpri 241 til 257 milljörðum íslenskra króna. Almenn viðskipti hefjast með bréf í félaginu að lokinni skráningu þess í Kauphöllina í New York á morgun. Blackstone Group er einn af stærstu fjárfestingasjóðum heims og á stórar eignir víða um heim. Morgan Stanley, Citigroup Inc. og 15 aðrir fjárfestingabanknar sáu um útboðið og skráningu bréfanna sem felur í sér sölu á 133,3 milljón hlutum á genginu 29 til 31 dalur á hlut. Verði gengi bréfanna í efri mörkum verður þetta sjötta stærsta hlutafjárútboð með bréf í félagi í Bandaríkjunum. Þá verður þetta sömuleiðis stærsta hlutfjárútboð vestra síðastliðin fimm ár. Bankarnir taka helmingi minna í þjónustugjöld og laun fyrir skráningu bréfa Blackstone en þegar þau höndla með bréf annarra fyrirtækja. Fjölmiðlar vestra segja ástæðuna fyrir því þann mikla kostnað sem samruni fyrirtækja muni hafa í för með sér og horfi þeir til þess að taka sneið af kökunni.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira