Carnegie í mál við sænsk stjórnvöld, deilt um forsvarið 10. desember 2008 09:31
Hlutafjáreigendur í móðurfélagi Carnegie bankans í Svíþjóð ætla í mál við Lánastofnun sænska ríkisins (Riksgälden) og forstjóra hennar Bo Lundgren vegna yfirtöku sænska ríkisins á Carnegie fyrr í vetur. Á sama tíma rekur Carnegie bankinn mál gegn sænska fjármálaeftirlitinu af sömu sökum. Þar er hinsvegar komin upp nokkuð skrýtin staða því gamla og nýja stjórn bankans deila nú um hvor þeirra eigi að vera í forsvari fyrir Carnegie í því máli. Sem kunnugt er af fréttum átti Milestone hlut í bankanum þegar hann var þjóðnýttur. Fram kemur á Dagens Industri að það er fyrrum forstjórinn Anders Fällman sem stjórnar lögsókninni gegn Riksgälden en hann er vopnaður lögfræðiáliti lagaprófessorsins Jan Kleinman. Samkvæmt áliti Kleinman stenst yfirtaka Riksgälden á Carnegie og tryggingarfélaginu Max Matthiesen ekki lög og brýtur gegn eignarrétti sænsku stjórnarskrárinnar. Anders Fällman stjórnar einnig málssókninni gegn fjármálaeftirlitinu en þar er þess krafist að afturköllun eftirlitisins á bankaleyfi Carnegie sé dæmd ógild. Núverandi forstjóri Peter Norman sem skipaður var af sænskum stjórnvöldum vill að málið sé í hans forsjá og sér ekki fyrir endan á þeirri deilu
Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Fleiri fréttir Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira