Fregnir af andláti fanga stórlega ýktar 10. desember 2008 12:01 Svona leit auglýsingin í Morgunblaðinu.
Undarlegt mál er komið upp í fangelsinu á Litla - Hrauni en í Morgunblaðinu í dag er sagt frá andláti Hákons Rúnars Jónssonar, refsifanga. Hákon er sagður hafa látist eftir langvarandi veikindi og er þeim sem vilja minnast hans bent á reikningingsnúmer. Þetta kom forsvarsmönnum Litla - Hrauns í opna skjöldu enda amar ekkert að Hákoni. Þegar nánar var að gáð kom svo í ljós að reikningurinn sem gefinn var upp í auglýsingu er í eigu annars fanga, Sigurbjörns Adams Baldvinssonar. „Maður er bara kjaftstopp," segir Páll Winkel fangelsismálastjóri sem segir málið eitt það ósmekklegasta sem hann hafi séð. Páli krossbrá „Okkur krossbrá enda um mann að ræða sem er á okkar vegum og í fullu fjöri." Páll segir að nú sé verið að vinna í því að upplýsa málið til þess að gera mönnum agaviðurlög. „Síðan verður lögregla látin vita af þessu, það er allveg klárt mál," segir Páll og segir líklegast að ákært verði fyrir fjársvik. „En málið er á frumstigi og það getur auðvitað verið þannig að einhver annar sé að gera þeim sem á reikninginn grikk," segir Páll og bendir á að ekki sé vitað hvort Hákon eða Sigurbjörn eigi þarna hluta að máli eða eru fórnarlömb. „Við vitum það ekki ennþá." Páll segir að agaviðurlög í málum sem þessum geti verið allt frá sviptingu aukabúnaðar, eins og tölva, yfir í einangrun. „En fyrst verðum við að upplýsa málið. En hver svo sem gerði þetta þá er þetta það ósmekklegasta sem ég hef séð."
Mest lesið Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Sjá meira