Fyrir leikinn voru Argentínumenn með eitt stig í fjórða og neðsta sæti riðilsins. Sigurinn í kvöld kom þeim upp í 2. sæti riðilsins. Katarar enduðu hins vegar í botnsætinu og eru úr leik.
Lautaro Martínez, framherji Inter, kom Argentínu yfir strax á 4. mínútu eftir skelfileg mistök í vörn Katar.
Annað markið lét bíða eftir sér en það kom loks á 82. mínútu. Sergio Agüero hljóp þá í gegnum vörn Katar og skoraði með góðu skoti í fjærhornið. Þetta var hans fertugasta mark fyrir argentínska landsliðið.
Í 8-liða úrslitunum mætir Argentína Venesúela sem endaði í 2. sæti A-riðils.
Mörkin úr leik Katar og Argentínu má sjá hér fyrir neðan.