ORF nælir í forstöðumann hjá Marel Stefán Ó. Jónsson skrifar 10. apríl 2019 10:19 Elísabet Austmann hefur gengið til liðs við Orf Líftækni.
ORF Líftækni hefur ráðið Elísabetu Austmann til starfa sem framkvæmdastjóra markaðssviðs. Hún starfaði áður hjá Marel en tók til starfa fyrir ORF í byrjun apríl. Meðfram því að leiða markaðsmál fyrirtækisins og vörumerkjauppbyggingu á húðvörulínunni BIOEFFECT mun Elísabet sitja í vöruþróunarráði félagsins. Greint er frá ráðningu Elísabetar í tilkynningu frá fyrirtækinu þar sem jafnframt er stiklað á stóru í ferli hennar. Elísabet er meðal annars sögð hafa fimmtán ára reynslu af markaðsmálum og vörumerkjastýringu, þar af tólf við að markaðssetja íslenskar vörur eða þjónustu á erlendum mörkuðum. Þá hefur Elísabet starfað hjá Marel undanfarin átta ár, fyrst sem sýningarstjóri, svo þróunarstjóri hjá Marel í Kaupmannahöfn þar sem hún sá um uppbyggingu og innleiðingu á sýningar- og þjálfunarhúsnæði fyrirtækisins. Hún tók síðan við sem sem forstöðumaður á alþjóðlegu markaðssviði Marels árið 2016 og bar ábyrgð á vörumerkinu Marel og framleiðslu á markaðsefni fyrir fyrirtækið á alþjóðavísu. Elísabet er alþjóðamarkaðsfræðingur með MBA frá Háskólanum í Reykjavík, en hún bætist nú í hóp þeirra 60 starfsmanna sem þegar starfa hjá ORF Líftækni.
Vistaskipti Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Sjá meira