Icelandair fellir niður um hundrað ferðir og tekur þriðju vélina á leigu Atli Ísleifsson skrifar 10. apríl 2019 08:49 Vél Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Vísir/Vilhelm
Icelandair hefur tekið þriðju vélina á leigu og ákveðið að fella niður um hundrað ferðir fram í miðjan júní til að bregðast við kyrrsetningu Boeing 737 MAX vélanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair Group. Þar segir að tekist með því að bæta leiguvélum við flotann hafi tekist að takmarka áhrifin á leiðarkerfið verulega. Áður hafði Icelandair gengið frá leigu á tveimur Boeing 767 breiðþotum og í dag gekk félagið frá leigu á þriðju vélinni. Sú er af gerðinni Boeing 757-200 og getur flutt 184 farþega. Verður hún í rekstri frá 15. maí fram í lok september 2019. „Á tímabilinu 1. apríl – 15. júní mun félagið fella niður um 3,6% af flugferðum sínum sem samsvarar rúmlega 100 ferðum á tímabilinu. Í flestum tilfellum er um að ræða flug til áfangastaða þar sem fleiri en eitt flug eru í boði sama dag. Þrátt fyrir þessar ráðstafanir helst sætaframboð félagsins nánast óbreytt þar sem notast verður við Boeing 767 flugvélar sem eru stærri en Boeing 737 MAX vélarnar. Af þeim sökum er gert ráð fyrir óverulegum áhrifum á heildarfjölda fluttra farþega á tímabilinu. Eins og fram hefur komið, hefur Icelandair jafnframt ákveðið að hætta við flug til Cleveland í Bandaríkjunum og Halifax í Kanada á þessu ári. Það skýrist að hluta til af kyrrsetningu MAX vélanna en jafnframt hafði áhrif á ákvörðunina að stór hluti farþega á framangreinda staði eru skiptifarþegar sem eru að ferðast milli N-Ameríku og Evrópu. Ákveðið var að færa framboðið yfir á áfangastaði þar eftirspurn er meiri eftir ferðum til og frá Íslandi. Fjárhagsleg áhrif kyrrsetningarinnar eru óviss á þessu stigi, m.a. vegna þess að ekki liggur fyrir hversu mikið af þeim kostnaði sem hlýst af kyrrsetningunni fæst bættur frá framleiðanda,“ segir í tilkynningunni.Flugvél WOW air sést hér á Keflavíkurflugvelli skömmu eftir að félagið fór í þrot.Vísir/vilhelmFjölga ferðum til Suður-Evrópu Ennfremur er sagt frá því að vegna breytinga á samkeppnisumhverfinu, það er með gjaldþroti WOW air, muni Icelandair auka við framboð sitt í flugi til Suður-Evrópu frá því sem áður var ákveðið. „Félagið hefur nú þegar bætt við framboði til Alicante og mun, í samstarfi við VITA, bjóða flug þangað þrisvar sinnum í viku í sumar. Ennfremur, hefur félagið hafið vinnu sem miðar að því að bæta vélum við flugvélaflota Icelandair sem einungis eru útbúnar almennu farrými. Mun fleiri sæti verða í þessum vélum en í núverandi vélum félagsins sem lækkar kostnað á hvert framboðið sæti og styrkir þ.a.l. samkeppnishæfni félagsins á þessum markaði. Þessar vélar henta betur í flug til áfangastaða sem eru ekki hluti af kjarnaleiðarkerfi Icelandair, t.d. Alicante og Tenerife, og skapa því tækifæri til frekari vaxtar. Gert er ráð fyrir að fyrstu vélarnar með þessari uppsetningu verði komnar í rekstur í byrjun árs 2020,“ segir í tilkynningu frá félaginu.
Boeing Fréttir af flugi Icelandair Tengdar fréttir Óljóst hvernig Boeing hyggst bæta tjónið Sérfræðingar telja líklegt að framleiðandinn þurfi að greiða mismuninn á rekstrarkostnaði vegna flugvéla og leigu á nýjum eftir kyrrsetningu 737 MAX 8. 10. apríl 2019 08:30 Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira
Óljóst hvernig Boeing hyggst bæta tjónið Sérfræðingar telja líklegt að framleiðandinn þurfi að greiða mismuninn á rekstrarkostnaði vegna flugvéla og leigu á nýjum eftir kyrrsetningu 737 MAX 8. 10. apríl 2019 08:30