
Breiða sáttin
Það er merkilegt hvað lítið hefur orðið úr þessari breiðu sátt. Katrín virðist kannski sátt við Bjarna og Svandís við Sigurð. Það er gott og blessað. Fólkið er ekki að munnhöggvast á þingi, eins og það væri væntanlega að gera núna ef það væri ekki saman í ríkisstjórn. Svo langt nær sáttin. En hún nær ekki mikið lengra.
Mótmæli úti um allt
Breiða sáttin átti væntanlega að ná út í þjóðfélagið. Það er ekki að sjá. Þvert á móti virðist ríkja mjög breitt ósætti. Hælisleitendur mótmæla á degi hverjum. Verkafólk er í baráttuhug og mundar verkfallsvopnið af áður óþekktri löngun, líkt og ósættið hafi soðið undir um árabil og sé loks að gjósa upp. Grunnskólanemar skrópa í skólum á föstudögum og fjölmenna niður í bæ til að mótmæla þeirri alvarlegu staðreynd að mannkynið er að kæfa sig sjálft í gróðurhúsalofttegundum og framtíðarútlit unga fólksins því vægast sagt dökkt. Satt að segja veit ég ekki almennilega hvort það sé hægt að finna beinlínis manneskju á Íslandi í dag sem er sátt. Hinn glaði Íslendingur er vandfundinn. Manni líður stundum eins og sá síðasti hressi á opinberum vettvangi hafi verið Hemmi Gunn.
Vont einkenni
Þetta er bagalegt einkenni á samfélagi. Sérstaklega forríku örsamfélagi norður í hafsauga. Það ætti að vera hægt að skapa nokkuð umfangsmikla sátt meðal hinna sárafáu íbúa með réttum áherslum og aðferðum. Það fer mikil orka í það að vera ósáttur. Dæs er orkusuga. Maður vill treysta samfélagi sínu. Maður vill búa í samfélagi þar sem málefnum hælisleitenda er sinnt af mannúð og víðsýni, en ekki piparúða. Maður vill tilheyra þjóðfélagi sem lítur á það sem frumskyldu að sjá til þess að vinnandi fólk geti lifað af launum sínum. Maður vill tilheyra þjóð sem er í fararbroddi í umhverfismálum og setur allt kapp á að vera öðrum þjóðum fordæmi. Ég gleymi því ekki þegar ég sat á þingi og nýkrýndur forsætisráðherra ákvað að ýta metnaðarfullum, og áður samþykktum tillögum um uppbyggingu græns hagkerfis á Íslandi til hliðar og setja fjármagnið í varðveislu torfbæja. Í ræðu sinni sagði hann að fátt væri grænna en torfbæir.
Hvað og hvernig?
Það er þetta sem ég á við. Augljósum kröfum tímans er mætt með skætingi. Deilur eru dyggð. Hungri er mætt með hagtölum. Neyð með kylfum. Dómur mannréttindadómstóls, sem hefur það hlutverk að vernda borgarana gegn valdmiklum stjórnvöldum sem ætíð hafa tilhneigingu til að misnota stöðu sína, er mætt með hundshaus. Spurningamerki reist við niðurstöðuna. Lítið um auðmýkt.
Hvernig verður meiri sátt til? Jú, ég held að hún verði til dæmis sköpuð með því að ríkisstjórn sem sagðist ætla að skapa meiri sátt fari að íhuga af meiri þunga og alvöru hvernig hún geti náð því markmiði sínu. Eitt held ég að geti verið leiðarljós í þeirri vinnu:
Að hlusta. Til að gera eitthvað af viti þarf að skilja og til að skilja þarf að hlusta. Hlusta á tif tíðarandans. Hlusta á fólk falla í fátæktargildrur. Hlusta á einstaklinga flýja til Íslands og mygla úr afskiptaleysi á Ásbrú. Hlusta á leiðann sem grípur um sig þegar ákvarðanir eru ekki réttar, þegar viðbrögð eru röng. Hlusta á vonbrigðin sem aðgerðarleysi getur valdið og særindin sem aðgerðir geta valdið. Hlusta á áhyggjur annarra. Hlusta á jörðina hitna. Hlusta á framtíðina versna.
Þjóðfélagshvíslari
Góð stjórnmálamanneskja er eins og þjóðfélagshvíslari. Hún horfir. Hún heyrir. Hún rýnir í. Hún leitar eftir. Hún trúir því líka — og þetta er erfitt á stundum — að innan um allan orðaflauminn, skoðanirnar, hrópin, köllin, jafnvel hatrið, birtist ætíð um síðir ákvörðun sem er kristaltær í sannleika sínum. Setningar verða til, aðgerðir verða til og þær eru góðar af einni og aðeins einni ástæðu: Þær gera heiminn betri, núna og til framtíðar. Þær auka sátt.
Ég held að fólk á þingi hafi mismikla trú á því að þetta sé hægt. Ég gruna suma um að skeyta litlu um svona markmið. Á sumum bæjum virðist tilgangurinn fremur að halda völdum og skipta gæðum. Ég veit þó líka hitt, að á meðal forystufólks þjóðarinnar eru manneskjur sem vita vel að markmið stjórnmála er æðra og merkilegra en stundargróði fárra eða gæsla úreltra hagsmuna. Það veit vel að stjórnmál geta verið ægifögur. Staðreyndin er hins vegar sú að margt af þessu fólki er upptekið þessa stundina við að halda saman ríkisstjórn hinnar breiðu sáttar á meðan þjóðfélagið logar í ósætti. Það kalla ég rangan fókus.
Skoðun

Kúnstin að vera ósammála sjálfum sér
Heiða Ingimarsdóttir skrifar

Óboðlegt ástand á Landspítala – okkar sjónarhorn
Hildur Jónsdóttir,Einar Freyr Ingason,Þórir Bergsson skrifar

Geislameðferð sem lífsbjörg
Ingibjörg Isaksen skrifar

Þetta eru ekki eðlileg vinnubrögð
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Stöðvum helvíti á jörðu
Birna Þórarinsdóttir,Bjarni Gíslason,Gísli Rafn Ólafsson,Sigríður Schram,Stella Samúelsdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar

Hversu mikið er nóg?
Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar

Til þeirra sem fagna
Sigurður Gísli Bond Snorrason skrifar

Að semja er ekki veikleiki – það er forsenda lýðræðis
Elliði Vignisson skrifar

Tekist á um hvort lýðræðið á Íslandi sé virkt eða hvort hefðaréttur sé á völdum
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Sumar og sól – en ekki alltaf sátt í sálinni
Ellen Calmon skrifar

Að flokka hver vinnur og hver tapar
Tryggvi Rúnar Brynjarsson skrifar

Hagur hluthafanna alltaf og undantekningarlaust í forgangi
Jón Kaldal skrifar

Má berja blaðamenn?
Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar

Nýr rektor og 2025 – tímamót í háskólamálum
Ástráður Eysteinsson,Magnús Karl Magnússon,Margrét Helga Ögmundsdóttir,Tinna Laufey Ásgeirsdóttir skrifar

Vonir um vopnahlé eins og hálmstrá
Sveinn Rúnar Hauksson skrifar

Samfélagið innan samfélagsins
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Til hamingju Íslendingar með nýja Óperu
Andri Björn Róbertsson skrifar

Hvers vegna hatar SFS smábáta? Svarið tengist veiðigjöldum
Kjartan Páll Sveinsson skrifar

„Oft er flagð undir fögru skinni“
Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar

Orðhengilsháttur og lygar
Elín Erna Steinarsdóttir skrifar

Fjögurra daga vinnuvika – nýr veruleiki?
Sigvaldi Einarsson skrifar

Ráðherra gengur fram án laga
Svanur Guðmundsson skrifar

Hagkvæmur kostur utan friðlands
Jóna Bjarnadóttir skrifar

Gagnsæi og inntak
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Sumargjöf
Þórunn Sigurðardóttir skrifar

Hannað fyrir miklu stærri markaði
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Grafarvogur framtíðar verður til
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Málþófið um veiðigjöldin vekur miskunnsama Samverja
Sigurjón Þórðarson skrifar

Menntastefna 2030
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar

Ágætu fyrrum samstarfsaðilar á Þjóðminjasafni Íslands
Uggi Jónsson skrifar