Makamál

Fáir vilja veglegar og dýrar gjafir frá makanum þessi jólin

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar

Fæstir kjósa að fá dýra eða veglega gjöf frá makanum sínum samkvæmt niðurstöðum síðustu könnunar Makamála. Tíu prósent sögðust vilja dýra eða veglega gjöf og átta prósent sögðu að það skipti máli að gjöfin sé ekki vegleg eða dýr. 60 prósent þátttakanda sögðu að verðið skipti engu máli, aðeins hugurinn á bak við gjöfina.

15 prósent þátttakanda sögðust ákveða verðbil fyrirfram, sem getur auðveldað valið mikið og enginn verður vandræðalegur yfir því að fá mikið dýrari gjöf en hann gaf sjálfur. Sjö prósent sögðust svo ekki gefa makanum jólagjöf. 

Niðurstaða okkar könnunar er því sú að fyrir flesta er það hugurinn sem gildir, ekki verðmiðinn. Svo ef þú átt eftir að velja jólagjöf fyrir makann þinn ættir þú hugsanlega að einbeita þér að einhverju sem muni hitta í mark hjá ástinni þinni í stað þess að reyna að sýna ást þína með veskinu.



Niðurstöður*

Skiptir þig máli hvað jólagjöfin frá makanum kostar?

10% Já vil að hún sé vegleg/dýr

8% Já, vil ekki of veglega/dýra

60% Verðið skiptir ekki máli heldur hugurinn á bak við gjöfina

15% Við ákveðum saman verðbil sem við gefum fyrir

7% Nei, við gefum ekki hvort öðru jólagjafir



*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×