Bílar

Þýskir bílaframleiðendur standa í uppsögnum til að fjármagna rafbílarannsóknir

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Daimler hugar að uppsögnum til að nota fjármagn í rafbíla og þróun þeirra.
Daimler hugar að uppsögnum til að nota fjármagn í rafbíla og þróun þeirra. Vísir/Getty
Daimler móðurfélag Mercedes-Benz hefur gefið út að 10.000 störf að lágmarki verði skorin niður til að mæta aukinni fjárfestingaþörf vegna þróunar rafbíla. Audi ætlar að fækka starfsfólki um 9.500 af þeim 61.000 sem starfa hjá framleiðandanum í Þýskalandi.

Mannauðsstjóri hjá Daimler, Wilfried Porth sagði í samtali við blaðamann BBC að störf sem myndu tapast „yrðu í fimm stafa tölum“. Daimler kallar orkuskiptin „stærstu breytingu á bifreiða geiranum frá upphafi“.

„Þróunin í átt að kolefnislausri framtíð krefst aukinna fjárfestinga, sem er ástæða þess að Daimler tilkynni um miðjan nóvember að það stæði til að ráðast í breytingar til að auka samkeppnishæfni, framþróun og fjárhagslegan styrk,“ samkvæmt Daimler.

Á heimsvísu starfa um 300.000 manns hjá Daimler í 17 löndum.

Þýskir bílaframleiðendur hafa verið lengi að tileinka sér nýjungar eins og sjálfkeyrandi bíla og rafbíla.

Audi E-tron og Angela MerkelVísir/Getty
Audi bendir þó á að aukin áhersla á rafbíla og rannsóknir þeim tengdum muni búa til um 2.000 ný störf.

Í yfirlýsingu segir Audi að „fyrirtækið verði að vera í stakk búið til að takast á við framtíðina sem geti þýtt að einhverjar starfslýsingar verði ekki lengur þarfar. Nýjar muni þó koma í staðinn.“


Tengdar fréttir

Hrekkjavökugrín kom í bakið á BMW

BMW gerði grín á kostnað Mercedes Benz í tilefni hrekkjavökunnar í gær. Mercedes Benz svaraði fyrir sig og sló öll vopn úr höndum BMW.

Daimler sektað um 140 milljarða

Daimler, móðurfyrirtæki Merc­edes-Benz, á yfir höfði sér háa sekt fyrir dísilvélasvindl og gæti sektarupphæðin numið 1 milljarði evra, eða um 140 milljörðum króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×