Viðskipti innlent

Lánsfé og flugrekstrarleyfi skilyrt við að hlutafjársöfnun klárist

Hörður Ægisson skrifar
María Margrét Jóhannsdóttir, samskiptafulltrúi Play, og Arnar Már Magnússon, forstjóri flugfélagsins, á blaðamannafundi í upphafi mánaðarins.
María Margrét Jóhannsdóttir, samskiptafulltrúi Play, og Arnar Már Magnússon, forstjóri flugfélagsins, á blaðamannafundi í upphafi mánaðarins. vísir/vilhelm
Fjörutíu milljóna evra lánsfjármögnun frá breska sjóðnum Athene Capital og öflun flugrekstrarleyfis hjá Samgöngustofu er skilyrt við að hinu nýstofnaða lággjaldaflugfélagi Play takist að fá fjárfesta til að leggja því til samtals tólf milljónir evra, jafnvirði um 1.700 milljóna króna, í hlutafé.

„Þetta hangir allt saman,“ útskýrði Jóhann M. Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa (ÍV), sem heldur utan um fjármögnun flugfélagsins, á fræðslu- og fjárfestakynningu sem forsvarsmenn Play og ÍV héldu fyrir fulltrúa í ferðaþjónustu á mánudag, samkvæmt viðmælendum Markaðarins sem mættu til fundarins. Var hann meðal annars sóttur af stjórnendum fyrirtækja í hvalaskoðun, hópbifreiðastarfsemi og hótelrekstri.

Í samtölum við mögulega fjárfesta í lok síðustu viku, samkvæmt heimildum Markaðarins, kom fram í máli forsvarsmanna Play og ÍV að fjárfestar væru þá búnir að lýsa yfir áhuga (e. soft commitment) á að leggja félaginu til samtals um 700 til 800 milljónir króna. Sá áhugi, að sögn kunnugra, sé hins vegar skilyrtur við að það takist að fá kjölfestufjárfesti að hlutafjárútboðinu. Það hefur enn ekki tekist.

Á fyrrnefndum fundi var lögð mikil áhersla á þýðingu þess fyrir íslenskt efnahagslíf, og þá einkum ferðaþjónustuna, að það takist að koma flugfélaginu af stað. Þannig hyggst flugfélagið, sem ætlar að hafa tíu Airbus-þotur í flota sínum frá og með 2022, flytja um 1,7 milljónir ferðamanna til landsins á næstu þremur árum.

Auk þess að biðla til fjölmargra einkafjárfesta, fyrirtækja, einkum í ferðaþjónustu, og fjárfestingarfélaga er einnig búið að leita til tryggingafélaga, sjóðastýringarfélaga, einkabankaþjónustu bankanna og að undanförnu hefur fjárfestingin í Play einnig verið kynnt nokkrum lífeyrissjóðum. Það er á skjön við fyrri yfirlýsingar en í fjárfestakynningu ÍV fyrr í þessum mánuði kom fram að frekar yrði leitað til einkafjárfesta og fjárfestingarfélaga þar sem lífeyrissjóðir og tryggingafélög hefðu líklega ekki svigrúm til að taka svona fjárfestingaákvörðun nægilega hratt.

Til tryggingar láninu frá breska sjóðnum, sem ber átta prósenta vexti, þarf félagið að vera með átta milljónir evra geymdar á vörslureikningi. Fram kom á fundinum að samkvæmt viðskiptaáætlun félagsins yrði lánið greitt upp innan þriggja ára og í kjölfarið myndi skapast umtalsvert svigrúm til að greiða út arð til hluthafa.

Fjárfestar hafa meðal annars sett sig upp á móti því að þeir eignist aðeins helmingshlut í félaginu á móti stofnendum og öðrum starfsmönnum Play fyrir hlutafjárframlag sitt. Á fundinum kom fram að stjórnendur Play væru til viðræðna um að hlutur þeirra yrði minni.


Tengdar fréttir

Hikandi við að leggja Play til hlutafé 

Erfiðlega hefur gengið að fá innlenda fjárfesta til að leggja lággjaldaflugfélaginu Play til samtals tólf milljónir evra, jafnvirði um 1.700 milljóna króna, í hlutafé en Íslensk verðbréf (ÍV) hafa á síðustu vikum biðlað til fjárfesta um að koma að fjármögnun félagsins.

Play semur við ungt þjónustufyrirtæki

Flugfélagið Play, sem áformar að hefja flugrekstur í vetur, verður í viðskiptum við Íslenska flug­afgreiðslufélagið ehf. um flugþjónustu á Keflavíkurvelli, samkvæmt heimildum Markaðarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×