Afi í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir ítrekuð brot gegn barnabarni sínu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. október 2019 16:14 Dómur var kveðinn upp í Landsrétti í dag. Vísir/Vilhelm
Landsréttur hefur staðfest þriggja og hálfs árs fangelsi yfir karlmanni fyrir að hafa ítrekað brotið kynferðislega gegn barnabarni sínu. Brotin voru framin er drengurinn var níu til tólf ára á árunum 2010 til 2013. Maðurinn var ákærður í þremur liðum. Í fyrsta lagi fyrir að hafa í fjölda skipta, haft önnur kynferðismök en samræði við barnabarnið, með því að snerta kynfæri þess og fróa því. Í öðru lagi með því að hafa í eitt skipti, er maðurinn lá í sama rúmi og drengurinn, lyft sænginni og sagt við drenginn að limur hans væri „rosalega stór“ og spurt hvort hann mætti finna hvað hann væri „harður“ og snert kynfæri drengsins. Þá var hann einnig ákærður fyrir að hafa í fjölda skipta þuklað í kringum kynfæri drengsins innan klæða.Sagði foreldrum sínum frá brotunum Málið má rekja til þess að Barnaverndarnefnd óskaði eftir því í júlí 2016 við lögreglu að hafin yrði rannsókn á meintum brotum mannsins, sem og eiginkonu hans, gegn barnabarni þeirra. Faðir drengsins hafði upplýst nefndina um brot afans skömmu áður. Greindi faðir drengsins Barnaverndanefnd frá því að drengurinn hafði greint foreldrum sínum frá því að afi hans hefði misnotað hann kynferðislega er hann var yngri. Sagði hann foreldrum sínum frá því að afi hans hefði snert hann og fróað honum í hjónarúmi afans og ömmunnar. Misnotkunin hefði staðið yfir í nokkur ár og skiptin verið mörg. Hefði amma brotaþola verið viðstödd og vakandi í einhverjum þessara tilvika en hún ekkert sagt við háttsemi eiginmanns síns. Þegar skýrsla var tekin af drengnum sagðist hann telja að afinn hefði fróað honum í minnst átta skipti, sýnt honum myndir af nöktum konum og þvegið honum og bróður hans „extra vel“ þegar þeir dvöldust á heimilinu, meðal annars um kynfæri og á milli rasskinna.Sagðist hafa verið að veita drengnum kynfræðslu Afinn og amman voru handtekin þann 22. júlí 2016 og neituðu þau sakargiftum. Sagði afinn að skýra mæti framburð drengsins að eitt sinn hafi drengurinn byrjað að fróa sér undir sænginni á meðan hann var að lesa fyrir drenginn. Sagðist hann hafa talað um þetta við drenginn þar sem það að fróa sér væri fullkomlega eðlilegur hlutur. Það ætti ekki að vera neitt feimnismál en heldur ekki að vera til sýnis. Í framhaldinu spurði afinn hvort hann mætti finna hversu harður limurinn væri og drengurinn svarað játandi. Hann hafi svo tekið utan um lim drengsins en talið að ekkert kynferðislegt hafi verið við þetta atvik. Þá kannaðist afinn við að hafa í eitt sinn, þegar hann og drengurinn hefðu verið að tala um stelpur og píkur, bent drengnum á að skrifa „vagina“ í leitarstreng á vefsíðunni Wikipedia. Hefðu þá birst fjölmargar myndir af kynfærum kvenna. Á afanum var að skilja að umfang myndefnisins hefði verið miklu meira en hann átti von á sem skýrðist af lítilli þekkingu hans á virkni netsins. Drengurinn var aftur boðaður í skýrslutöku nokkru síðar og bar hann þá um nokkur tilvik þar sem afinn hafði farið með höndina ofan í nærbuxur hans á meðan þeir voru að horfa á sjónvarpið og hafi afinn káfað á svæðinu við typpi drengsins.„Ertu að runka þér?“ Sem fyrr segir var ákæra í málinu gefin út á hendur afanum vegna málsins og við aðalmeðferð þess fyrir Héraðsdómi Reykjaness neitaði hann sök, sagði hann engan fót vera fyrir lýsingum atvika í ákæruliðum eitt og þrjú en að þau samskipti sem hann var ákærður fyrir í kærulið tvö hafi verið „fullkomlega eðlileg“. Fyrir dómi lýsti hann samskiptunum nánar og sagðist hafa, líkt og við skýrslutöku, orðið var við að barnið væri að fróa sér er hann hafi verið að lesa fyrir það. „Ertu að runka þér?“ sagðist hann hafa spurt drenginn. Hann hafi svo lyft upp sænginni og sagt „Mikið svakalega er hann stór.“ Því næst hefði ákærði tekið utan um typpið á drengnum með tveimur fingrum og bætt við: „Og harður.“ Var hann minntur á skýrslugjöf sína hjá lögreglu þar sem hann sagðist hafa beðið um að fá að koma við typpið. Fyrir dómi sagðist hann ekki kannast við það, hann hlyti að hafa mismælt sig. Sagði hann að drengurinn hefði á þessum tímapunkti sagt „Nuddaðu hann afi.“ Ákærði hefði svarað: „Nei, það gerir maður bara sjálfur.“ Sagðist hann hafa í kjölfarið rætt fram og til baka við drenginn um að ekki væri óeðlilegt að að fróa sér en að það væri gert í einrúmi. Taldi hann einnig að drengurinn væri að bera á hann rangar sakargiftir sem rekja mætti til sálfræðinga sem haft höfðu drenginn til meðferðar. Undir þetta tók kona mannsins, amma drengsins, sem taldi að ásakanirnar á hendur manni sínum væri „óskiljanlegt bull“ og að um algerar ranghugmyndir drengsins væri um að ræða.Nýtti sér yfirburðarstöðu Fyrir dóm voru lögð fram vottorð sálfræðinga þar sem meðal annars kom fram að drengurinn hafi verið afar samkvæmur sjálfum sér í viðtölunum þegar talið hafi borist að því kynferðisofbeldi sem hann hafi greint frá. Þá báru foreldrar drengsins vitni um það að drengurinn hafi farið að forðast það að umgangast afa sinn og ömmu eftir að brotin hófust og að líðan hans hafi versnað frá þeim tíma sem brotin áttu að hafa hafist. Maðurinn var sakfelldur í öllum ákæruliðum málsins en það var niðurstaða hérdóms að meta mætti framburð drengsins í málinu trúverðugan, auk þess sem að ýmis atriði, svo sem það álit afans að rekja mætti ásakanir drengsins til sálfræðinga hans, drægju úr trúverðugleika afans, ekki síst vegna þess að framburður og vottorð sálfræðinga og framburður foreldra hans væru að töluverðu leyti í samræmi. Í dómi héraðsdóms frá því í júlí 2018 segir að brot afans hafi verið alvarleg og framin á nokkurra ára tímabili. Þá hafi hann nýtt sér þá yfirburðastöðu sem hann hafði gagnvart barnungum sonarsyni sínum. Var maðurinn dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi, auk þess sem hann þarf að greiða fjórar milljónir í sakarkostnað og 1,7 milljónir til drengsins í miskabætur. Maðurinn áfrýjaði dómnum til Landsréttar sem kvað upp dóm sinn í dag.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Fleiri fréttir Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Sjá meira