Viðskipti innlent

Veitingastað Braggans lokað

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Veitingastaðurinn Bragginn Bistro & Bar hefur verið lokaður undanfarnar vikur. Gert er ráð fyrir að hann opni aftur í næstu viku.
Veitingastaðurinn Bragginn Bistro & Bar hefur verið lokaður undanfarnar vikur. Gert er ráð fyrir að hann opni aftur í næstu viku. Vísir/vilhelm
Stefnt er að enduropnun hins umtalaða Bragga í Nauthólsvík í næstu viku. Veitingastaður Braggans hefur verið lokaður undanfarnar vikur, eftir að rekstraraðilar Braggans Bar & Bistro sögðu samningi sínum lausum í vor.

Vefur Hringbrautar greindi frá því í gærkvöld að búið væri að skella þar í lás. Þá hafa vef- og Facebook-síður veitingarstaðarins verið lagðar niður, en staðurinn opnaði sumarið 2018.

Háskólinn í Reykjavík leigir húsnæðið af Reykjavíkurborg og hefur greitt 694 þúsund krónur á mánuði fyrir. HR nýtir hluta húsnæðsins undir nemendaaðstöðu og frumkvöðlasetur, auk þess sem skólinn hefur milligöngu um að leigja það áfram til rekstraraðila veitingastaðarins.

Sjá einnig: Skýrsla innri endurskoðunar um framkvæmdir við Braggann



Eiríkur Sigurðsson, forstöðumaður markaðs- og samskiptasviðs HR, segir í samtali við Vísi að það sé rétt að Bragginn sé nú í millibilsástandi meðan nýr rekstraraðili kemur sér fyrir. Hann hafi fengið lykla að Bragganum á dögunum og gerir ráð fyrir að opna strax í næstu viku.

Starfsmenn máttu þola aðkast

Fréttastofa hefur ekki náð á Daða Agnarsson, rekstraraðila Braggans Bar & Bistro, vegna málsins en Eiríkur segir að hann hafi sagt samningi sínum lausum í vor. Fræg er Facebookfærsla Daða um þá óvægnu umræðu sem Bragginn mátti þola vegna framúrkeyrslu vegna byggingar hans, sem leiddi m.a. til þess að starfsfólk Braggans, sem voru um 18 talsins, þurfti sífellt að afsaka vinnustað sinn.

„Þetta er fólk sem þarf að svara fyrir mistök annara, svara fyrir óábyrga umræðu stjórnmálamanna og reyna að útskýra að hvorki þau né þeir aðilar sem koma að rekstri Braggans Bar & Bistró hafa ekkert með þann kostnað, framkvæmdir eða annað sem misfórst í byggingu húsana að gera,“ skrifaði Daði.

Nánar má fræðast um Braggamálið svonefnda með því að smella hér. 

Uppfært kl. 12:05.

Háskólinn í Reykjavík hefur birt tilkynningu á vef sínum um málið. Þar er þess getið að félagið NH 100 ehf. hafi tekið við veitingarekstri í Bragganum en félagið er í eigu sömu einstaklinga og hafa séð um rekstur á Nauthóli og matsölunni Málinu í háskólanum. „Nýir rekstraraðilar hyggjast leggja aukna áherslu á að Bragginn verði félagsaðstaða fyrir nemendur HR og munu eiga náið samstarf við Stúdentafélag HR og bjóða upp á fjölbreytta viðburði í samstarfi við nemendur,“ segir í tilkynningunni.




Tengdar fréttir

Útilokað að Norðmenn reisi bragga

Bjarki Þór Steinarsson er lögfræðingur á innkaupaskrifstofu sveitarfélags í Noregi með svipað marga íbúa og Reykjavík. Hann segir útilokað að mál sem hafi komið upp hér á landi í tengslum við opinber innkaup geti komið upp þar í landi. Furðar hann sig á því að verktakar séu ekki tilbúnir að fara í skaðabótamál þegar ekki er farið eftir reglum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×