Sterling sá um Dinamo Zagreb

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
vísir/getty
Innkoma Raheem Sterling sá um Dinamo Zagreb þegar Englandsmeistararnir í Manchester City mættu króatíska liðinu í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

City var með mikla yfirburði í leiknum og fór með hvert færið á eftir öðru áður en varamaðurinn Sterling braut loks ísinn á 66. mínútu þegar hann setti fyrirgjöf Riyad Mahrez í netið.

Sterling lagði svo upp markið sem gulltryggði sigurinn. Hann sendi fyrir markið á Phil Foden, sem hafði einnig komið af varamannabekknum, og kláraði Foden færið af öryggi.

City er með fullt hús eftir tvo leiki og situr á toppi riðilsins.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira