Fótbolti

Skellur gegn Frökkum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Íslenska kvennalandsliðið mætti ofjarli sínum í kvöld
Íslenska kvennalandsliðið mætti ofjarli sínum í kvöld Fréttablaðið/Ernir
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta tapaði fyrir því franska í vináttuleik ytra í kvöld.

Eugenie le Sommer skoraði tvö mörk á fyrsta rúma korteri leiksins og var Frakkland 2-0 yfir í hálfleik.

Frakkar voru einfaldlega aðeins of stór biti fyrir íslenska liðið og voru með yfirburði í leiknum. Delphine Cascarino skoraði þriðja mark Frakklands á 66. mínútu og varamaðurinn Amel Majri kláraði leikinn á 85. mínútu.

Lokatölur urðu 4-0 fyrir Frakka.

Íslenska liðið þarf að vera fljótt að bregðast við þessum úrslitum því liðið heldur til Lettlands og mætir heimakonum í undankeppni EM á þriðjudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×