Bílar

Rafbílar skulu gefa frá sér hljóð

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Rafbílar og tvinnbílar verða að gefa frá sér hljóð.
Rafbílar og tvinnbílar verða að gefa frá sér hljóð. Vísir/Vilhelm
Rafbílar og tvinnbílar verða að gefa frá sér hljóð þegar þeim er ekið hægar en á 20 km/klst og þegar þeim er bakkað. Á meiri hraða þykir hávaði frá hjólbörðum og vindhljóð nægja til að gera öðrum vegfarendum viðvart.

Upphaf þessara krafna má rekja aftur til 2010. Fyrstu reglurnar voru skrifaðar 2016. Framleiðendur rafbíla fengu upphaflega frest til 1.júlí á þessu ári til að tryggja að bílar þeirra fylgdu hávaðastöðlum.

Þessar reglur hafa verið innleiddar í íslenska löggjöf með innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 540/2014 um hljóðstig vélknúinna ökutækja og hljóðdeyfakerfi. Lesa má reglugerðina á íslensku hér.

Skammt er í að prófað verði hvort hljóðviðvörunarkerfin virki þegar raf- og tvinnbílar koma til skoðunar á skoðunarstöðum samkvæmt Þórhildi Elínardóttur, samskiptastjóra Samgöngustofu.

Þórhildur Elín Elínardóttir samskiptastjóri Samgöngustofu.Vísir/ÞÞ
Nokkrir framleiðendur hafa þegar hafið innleiðingu á þessum reglum í sína bíla. Mitsubishi Outlander til að mynda gerir meira úr hljóðum rafmagnsmótorsins en þyrfti.

Mercedes AMG hefur unnið með rokkhljómsveitinni Linkin Park til að búa til auðkennandi hljóð fyrir sportbíla sína. Porsche Taycan getur fyrir um 500 Bandaríkjadali, jafnvirði um sextíu þúsund íslenskra króna framleitt hljóð sem er eins og frá eldsneytismótor. Nissan hefur þróað viðvörunarkerfi sem kallað er Canto til að tryggja að vegfarendur heyri Nissan bíla koma.


Tengdar fréttir

Ferðuðust hringinn á rafmagni einu saman

Svanhildur Hólm Valsdóttir og eiginmaður hennar keyrðu hringinn í kringum landið á rafmagnsbíl. Hún segir vel hægt að ferðast langar vegalengdir á rafmagnsbíl sem er bæði ódýrari og umhverfisvænni kostur en bensínbíllinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×