Makamál

Flestir segja fyrrverandi maka vera vandamál í núverandi sambandi

Samkvæmt könnun Makamála þá segir meirihluti svarenda að fyrrverandi maki geti verið vandamál í númverandi sambandi.
Samkvæmt könnun Makamála þá segir meirihluti svarenda að fyrrverandi maki geti verið vandamál í númverandi sambandi. Getty
Flestir sem byrja í sambandi á fullorðinsaldri eiga sér einhverja sögu um fyrrverandi sambönd og eiga jafnvel börn úr fyrri samböndum. 

Í litlu samfélagi eins og á Íslandi er nálægðin oft mikil og þegar sambönd enda eru miklar líkur á því að þú og fyrrverandi maki sækið jafnvel sömu staðina, ræktina eða séuð hluti af sama vinahóp. Það er getur því reynst mörgum erfitt að halda áfram með nýtt líf þegar fyrrverandi maki heldur áfram að vera sýnilegur í daglegu lífi.

Makamál spurðu í síðustu viku hvort að fyrrverandi maki væri vandamál í núverandi sambandi og voru niðurstöðurnar voru frekar afgerandi.

Aðeins 46% svara því að fyrrverandi maki sé ekki vandamál í núverandi sambandi. 

Hægt er að sjá nákvæmari niðurstöður hér:

Já, 21%

Stundum 23%

Sjaldan 10%

Nei 46%

Samkvæmt þessum niðurstöðum mætti draga þá ályktun að í flestum samböndum sé fyrrverandi maki einhvern tíma vandamál. 



Makamál mættu í Brennsluna á FM957 í morgun og kynntu niðurstöður könnuninni. 

Hægt er að hlusta á líflegar umræður og kynningu á nýrri spurningu vikunnar hér fyrir neðan.  


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×