Handbolti

Þórey Anna skaut KA/Þór í kaf

Anton Ingi Leifsson skrifar
Þórey Anna Ásgeirsdóttir var á eldi í dag.
Þórey Anna Ásgeirsdóttir var á eldi í dag. vísir/daníel
Stjarnan er með fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina í Olís-deild eftir sigur á KA/Þór, 26-23, er liðin mættust í Garðabænum í kvöld.

Stjarnan var þremur mörkum yfir í hálfleik, 11-8, en sigurinn var aldrei í hættu. Þær náðu mest sjö marka forystu en norðanstúlkur náðu að minnka muninn áður en yfir lauk.

Þórey Anna Ásgeirsdóttir fór á kostum í liði Stjörnunnar. Hún skoraði tíu mörk úr fjórtán skotum auk þess að gefa fjórar stoðsendingar. Stefanía Theodórsdóttir gerði átta mörk.

Kristín Jóhannsdóttir og Hulda Bryndís Tryggvadóttir gerðu fimm mörk hvor fyrir KA/Þór en Martha Hermannsdóttir gerði þrjú mörk.

Stjarnan er því með fjögur stig eftir tvær umferðir en KA/Þór er án stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×